31.03.1926
Efri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í C-deild Alþingistíðinda. (2176)

40. mál, yfirsetukvennalög

Ingvar Pálmason:

Jeg stend ekki upp til þess að bera blak af fjhn., þó ýmsu hafi verið að henni kastað, það er búið að gera það svo rækilega. En það er ýmislegt annað, sem fram hefir komið í þessum umræðum, er vert væri að taka til athugunar. Það hafa verið borin saman laun yfirsetukvenna og annara starfsmanna í sveitum og nefndir oddvitar og sagt, að ekki væri frekar knýjandi ástæða til þess að hækka laun yfirsetukvenna en oddvita. Jeg skal nú ekki fara út í þá sálma, að lýsa áliti mínu á því, hvort laun oddvita eru of há eða lág, en geta vil jeg þess, að það stendur ólíkt á með oddvita og yfirsetukonur. Lögin slá varnagla við því, að sveitin geti nokkru sinni orðið oddvitalaus. Auk þess er sá kostur við oddvitastarfið, ef maður hefir gegnt því í 3 ár og þykir launin of lág, getur hann heimtað að vera laus við starfið jafnlangan tíma. Að þessu leyti er alt öðruvísi ástatt með oddvitana en yfirsetukonurnar. — Það má ekki dragast lengur að bæta launakjör ljósmæðra, því að það eru að verða vandræði með yfirsetukonur. Mjer þótti vænt um útreikninga hæstv. fjrh. (JÞ). En er hann talaði um aldursuppbótina, misreiknaði hann sig, er hann taldi, að þær, sem starfað hefðu í 8 ár, kæmust undir hæstu launin. Mjer skilst, að til þess þurfi 12 ár. Annars þótti mjer vænt um, að hann komst að þeirri niðurstöðu, að meðal-yfirsetukonulaun í sveit mundu vera 700 krónur. En þá er að líta á, hver sjeu meðallaun venjulegra starfskvenna. Ætli það sjeu ekki 700 krónur? Jeg hygg, að það sje meira. Jeg hefi goldið kvenmanni fyrir 5 mánaða vinnu meira en 700 krónur, sem sje 100 krónur á mánuði og fæði. Kvenmenn, sem vinna algenga vinnu, þurfa ekki nema 5 mánuði til þess að vinna sjer inn sem þessu svari. Hæstv. fjrh. (JÞ) sannaði með dæmi, sem hann reiknaði út, að þrátt fyrir þá hækkun, sem hjer er farið fram á, þá yrðu laun yfirsetukvenna í sveitum ekki hærri en laun óbreyttra verkakvenna. Hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) jafnaði saman launum verkakonu og yfirsetukonu í sveit. Á 6 mánuðum vinnur verkakonan fyrir sama kaupi og yfirsetukona fær fyrir alt árið og hefir svo afgangs 6 mánuði ársins, og er því betur stödd. — Með öðrum orðum, hvar sem litið er, þá ber að sama brunni: laun yfirsetukvenna verða ekki hærri en algeng verkalaun, þó tillögur nefndarinnar nái fram að ganga. Jeg tel því, að umr. hafi sannað það, að frv. sje í hóf stilt og síst ástæða til þess að draga úr launaákvæðum þess. Jeg skal játa, að ein mótbára gegn frv. kunni að vera á rökum bygð, og verður það að skrifast á reikning nefndarinnar. það er sú málsgr. 1. gr., sem talar um dýrtíðaruppbótina. Það er talið, að hún sje ekki nógu ljós í því, hversu uppbótina skuli greiða. En jeg verð að líta svo á, að það komi ekki að sök, því í upphafi greinarinnar er það skýrt ákveðið, að launin skuli greiða að hálfu úr ríkissjóði og að hálfu úr bæjarsjóði, og gildir þá auðvitað sama um uppbótina. Ef þessu er yfirlýst af þeim, sem frv. hafa samið, þá skil jeg ekki, að það geti valdið misskilningi. En jeg játa að vísu, að frá lögfræðislegu sjónarmiði er þetta ekki nógu skýrt.

Jeg sje svo ekki ástæðu til þess að fara út í fleiri andmæli gegn frv., sem fram hafa komið við þessa umr. þau hafa flest snúist á þá sveif, að hjer sje verið að íþyngja þeim, sem þessi laun eiga að greiða. Það er auðvitað heldur ekki hægt að hækka þessi laun án þess að taka þá hækkun einhversstaðar.

Þá hefir því verið andmælt hjer, að ríkissjóður greiddi þessi laun að hálfu móti bæjarsjóðum, og er fram komin brtt. um að breyta þessu þannig, að bæjarsjóður greiði launin öll. Mjer er þetta ekkert kappsmál, en tel þó eðlilegt, að þetta sje eins í bæjum og sveitum. En ef brtt. verður samþ., þá ruglast 1. gr. dálítið, og frv. verður óaðgengilegra. Jeg held því, að rjettast sje að taka það ráð að samþykkja frv. eins og það er, enda hefi jeg ekki heyrt nein mótmæli, sem geri það eðlilegt, að það sje í alla staði sanngjarnt, að bæjarsjóður greiði launin öll, en í sveitum greiði ríkið helminginn. Þess var getið við 1. umr., að í nefndinni væri maður úr væntanlegum kaupstað, og mun þar hafa verið átt við mig, En jeg get fullvissað menn um, að það hefir engin áhrif haft í þessu máli.

Þá er enn eitt atriði, sem komið hefir til greina við umr., sem sje að sameina yfirsetu- og hjúkrunarstarf í sveitum. Jeg skal játa það, að jeg hefði gjarnan kosið, að sú leið væri farin. En nefndin mintist á það við landlækni, og rjeð hann frá því. Nú er hann lærðari um þetta en nokkur maður í nefndinni, því þar er enginn læknisfróður maður, svo ekki var von, að nefndin treystist til þess að gera till. á móti áliti hans. En jeg tek það fram, að frá mínu leikmanns sjónarmiði álít jeg, að þetta gæti komið að miklu liði til sveita. Eini hængurinn er sá, að flestar þær yfirsetukonur, sem nú eru í sveitum, eru ekki sjerstaklega lærðar sem hjúkrunarkonur, og breytingin hefði því það í för með sjer, að við fengjum ólærðar hjúkrunarkonur. það gæti að vísu komið að liði í sumum stöðum, en að demba því á með lagaboði tel jeg óhagkvæmt.