31.03.1926
Efri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í C-deild Alþingistíðinda. (2178)

40. mál, yfirsetukvennalög

Ingibjörg H. Bjarnason:

Það er ekki auðvelt að eiga að tala í þessu máli, eftir þær löngu umræður, sem á undan eru gengnar, og varla þess að vænta, að nokkuð nýtt komi fram. Þó skal jeg benda á eitt atriði, sem er nýtt og hefir ekki komið fram áður undir umræðunum, en það er þetta: Ljósmæðrafjelag Íslands krefst þessara launabóta, sem í frv. felast, og ljósmæðurnar standa sem einn maður að þeirri kröfu. Það liggur í augum uppi, að þetta er ekkert aukaatriði fyrir þeim. Launin, sem menn fá fyrir störf sín, eru aldrei aukaatriði.

Hv. 1. þm. Rang. (EP) sagði, að nefndin, sem um málið fjallaði, hefði litið á það eingöngu frá annari hlið þess, sem sje frá hlið ljósmæðranna. Ennfremur sagði hann, að það væru ekki launin, sem rjeði því, hvort ljósmæður tyldu í sveitunum; menn dveldu alment þar, sem þeir helst kysu að vera. En ætli launakjörin sjeu ekki alment stór liður í því, hvar menn leita sjer atvinnu? Í sambandi við þetta var svo sagt, að þótt launakjörin yrðu bætt, þá væri ekki þar með bætt úr yfirsetukvennaskortinum. Jeg held, að það mundi nú samt bæta úr ljósmæðraskortinum, einkum ef lögin um yfirsetukvennaskólann væru endurskoðuð. Þegar þau lög voru sett 1924, þá var spurt um það, hvort skólinn mundi geta annast nám nógu margra yfirsetukvenna, og því var svarað játandi. En að reynslan hefir orðið önnur, hygg jeg að stafi að nokkru leyti af því, að styrkur sá, sem til námsins er veittur, er ekki skilyrðisbundinn, — nema á pappírnum. Það er að vísu sagt, að þær stúlkur, sem hans njóta, verða að gegna yfirsetukonustöðu um 5 ára bil, en það er ekki gengið nægilega eftir því, þær upplýsingar hafa verið gefnar hjer, að ljósmæður vanti í um 30 umdæmi víðsvegar um land. Og það er vitanlega ekki meinalaust, að það vanti yfirsetu konu í hjerað; það getur riðið á lífi konu og barns, eins og allir vita.

Þá hefir verið talað um það, að yfirsetukonustarfið væri ekki aðalstarf. Hvað er aukastarf og hvað er aðalstarf — vilja hv. þm. svara því? Og er ljósmóðurstarfið aukastarf fremur öðrum störfum? Jeg held, að þessu sje örðugt að svara játandi.

Sem sagt, yfirsetukonur standa sem einn maður á bak við þessar launakröfur. Og þær hafa sagt, að þær gerðu það ekki af því, að þær væru svo áfjáðar í peninga. En þær komast ekki af með þau laun, sem þær fá, hvorki hjer í Reykjavík og því síður til sveita. En fyrst svona er, þá er það sama og að segja: Við tökum ekkert mark á kröfum ljósmæðranna, þær hanga við starfið, þó þær fái ekki nema allra minstu úrlausnina, sem sje þá, er felst í till. á þskj. 258. Mjer er kunnugt, að ljósmæður vilja heldur, að málið liggi óbætt, en að þær gangi að slíku, og þess vegna er ekki um annað að ræða en að samþykkja frv. eins og það er, eða láta málið bíða betri tíma og sjá þá, hvort þessi stjett fær ekki að lokum sanngirniskröfum sínum fullnægt. — Hjer kom í ljós, við samanburð á kjörum verkakvenna og ljósmæðra, að ljósmæður hafa engu betri kjör, og hafa þær þó mun þýðingarmeira og bundnara starf, þar sem ljósmóðirin má aldrei vera lengur samfleytt að heiman úr hjeraði sínu en tvo daga, án sjerstaks leyfis. Þá hafa laun kennara til sveita einnig verið borin saman við laun og störf ljósmæðra. En þessi tvenn störf eru ósambærileg, því þó að minni vinna sje við annað og sjaldnar, þá er á það að líta, að sá, er að því starfar, er bundinn við það allan ársins hring, en við hitt ekki nema sex mánuði af árinu, og finst mjer því vera rjettlítill samanburður á þeim. Um hitt atriðið, hver skuli greiða dýrtíðaruppbótina, hafa orðið nokkrar umr., og býst jeg ekki við að geta kipt neinu þar í lag, þó að jeg segi eitthvað um það atriði. En jeg get tekið undir með þeim hv. þdm., sem hafa sagt, að þeim þætti æskilegast, að öll laun yfirsetukvenna væru greidd úr ríkissjóði, af þeirri ástæðu, að á sýslusjóði og bæjarsjóði sje svo hlaðið gjöldum, að ekki sje við það bætandi. Og jeg skyldi glöð ganga inn á það, að öll þessi laun yrðu greidd úr ríkissjóði, því að þá fyndist mjer, að ljósmæðrum væru gerð rjett skil, og þeirra ábyrgðarstarf metið sem rjett væri. Þá hefir verið talað um, að ósamræmanlegt væri, að ljósmæður fengjust að einhverju leyti við hjúkrunarstörf, og landlæknir verið borinn fyrir því, að það væri vegna hinnar miklu smitunarhættu; en þó veit jeg það, eins og líka hefir verið tekið fram af öðrum hv. þdm., að það stafar ekki meiri hætta af því, að ljósmóðir aðstoði við hjúkrun, heldur en stafar af því, að læknirinn gengi frá einum sjúkling til annars, því að jeg geri ráð fyrir því, að bæði sjeu sjer þess meðvitandi, að menn heimta af þeim ítrasta hreinlæti og þekkingu á því, hvað gera skuli, til þess að ekki leiði hættu af. Jeg veit til þess, að alt fram á þennan dag hafa margar ljósmæður ekki aðeins gegnt störfum sínum sjer til mikils sóma og öðrum til hjálpar, heldur hafa þær jafnvel samtímis verið miklir menningarfrömuðir í sínu hjeraði og víða þar, sem þær hafa verið sóttar, útbreitt meiri þrifnað og yfirleitt verið nokkurskonar ljósberar í sveitunum. Það er mjer óhætt að fullyrða. Jeg skal svo ekki þreyta hv. deild á fleiri eða lengri athugasemdum í þessu máli. Jeg vona sem sagt, að þessu máli verði gerð þau skil hjer í deildinni, að ljósmæðurnar geti orðið ánægðar, og það verði þinginu til sóma á þann hátt, að það sýni glöggan skilning á því, að það beri að verða við kröfum þessarar stjettar.