31.03.1926
Efri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (2179)

40. mál, yfirsetukvennalög

Guðmundur Ólafsson:

Jeg ætla nú ekki að segja margt í viðbót við það, sem jeg hefi áður sagt, því að mjer er farið að ofbjóða, hvað umr. um þetta mál eru orðnar langar. En það er eins og vant er, að þegar verið er að ræða laun einhverra manna, þá verður mönnum allmjög skrafdrjúgt. Jeg vil taka það strax fram, að jeg lít ekki ósvipað á þetta mál eins og hæstv. fjrh. (JÞ), það verður að líta á fleira en að gera viðkomendur alveg ánægða, því að það eru ekki svo fáir starfsmenn, sem ríkið þarf að greiða laun, en hv. nefnd og fleiri hafa talað kröftuglega með þessu frv., og eru sumar ástæðurnar heldur skrítnar, að mjer þykir, þegar þær eru teknar saman, Hv. frsm. nefndarinnar (GunnÓ) sagði, að mikil þörf væri á að bæta launin vegna þess, hve mikil vöntun væri á ljósmæðrum, og svo kemur annar hv þm. úr nefndinni og segir, að það megi ráða bót á þeirri vöntun með því að hækka launin, og svo er í þriðja lagi talað um, að heppilegt mundi vera að láta þær líka starfa sem hjúkrunarkonur. En hvað kemur það málinu við? Ef þær eru hjúkrunarkonur um leið, myndu þær þá ekki þurfa að fá hærri laun? (IHB: Nei). Jæja, segir hv. þm. það, þá er alt gott, en það er þó ómögulegt þá að neita þeim um launaviðbót, því að þá væru launin, sem frv. ákveður handa þeim, alt of lág. En annars stóð jeg mest upp til þess að lýsa ánægju minni yfir því, að þrír hv. þm., sem talað hafa, hafa lýst yfir því, að þeir mundu samþykkja þessa skriflegu brtt., sem jeg hefi borið fram, svo að jeg hefi þá bestu vonir um, að hún verði samþ., enda virðist mjer hún sanngjörn.