10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (2191)
40. mál, yfirsetukvennalög
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg hygg, að sá gjaldaauki, sem þetta frv. hefir í för með sjer, sje nálægt 45 þús. kr. fyrir ríkissjóð og jöfn upphæð fyrir sýslusjóði. Auk þess verður það til töluverðra útgjalda fyrir kaupstaðina, en jeg hefi ekki rannsakað, hve miklu það nemur, — Þessi útgjöld nema nú liðugum 50 þúsundum, sem skiftist til helminga á sýslusjóði og ríkissjóð, en eftir frv. fer það upp undir 150 þús. Jeg álít, að þörf sje á að breyta launakjörum yfirsetukvenna nokkuð, en hefi eigi þau gögn með höndum, að jeg geti sagt, hve langt skal farið í því. En þegar verið er að bæta launakjör starfsmanna hins opinbera, er óeðlilegt, að þau þrefaldist í einni svipan. Það er venjan, að hækkunin nemi aðeins örlitlu broti af allri launaupphæðinni. Hefi jeg ekki rök til að meta, hvað sanngjarnt er í þessu. — Út af till. hv. minni hl. og dagskrártill. hv. 1. þm. N.-M. (HStef) vildi jeg segja nokkur orð, Yfirsetukvennalögin voru afgreidd frá þinginu 1919, sama ár og launalögin. Var þá litið svo á, að ekki þyrfti að ákveða dýrtíðaruppbót af launum yfrsetukvenna. Náði hún þá aðeins til þeirra embætta, sem talin voru í launalögunum; en ekki til hinna, sem stofnuð voru samkv. öðrum lögum, og aðeins nefnd í þeim. En á síðasta þingi var þessu breytt svo, að það var látið taka til allra þeirra embættis- og sýslunarmanna, sem voru í þjónustu landsins. Lá því mjög nærri, að yfirsetukonur gætu fallið þar undir. Það mun þó hafa orðið niðurstaðan í fjárhagsnefndum, að þær ættu ekki tilkall til dýrtíðaruppbótar, sakir þess að þær væru ekki starfsmenn landsins, heldur hinna einstöku hreppa, þótt ríkissjóður greiddi helming launa þeirra í sveitum. En nú er hv. Ed. búin að fallast á það með frv. þessu, að þær fái dýrtíðaruppbót af þeim hluta, er ríkissjóður greiðir. Ef hv. Nd. samþykkir það nú einnig, að sínu leyti, með þeirri dagskrá, sem hjer liggur fyrir, mun jeg ekki hafa neitt á móti að greiða það. En verði þetta á annað borð greitt, lít jeg svo á, að það beri að gera frá 1. okt. 1925, þegar lögin komu í gildi; sem breyttu dýrtíðaruppbótinni. Hitt verð jeg þó að segja, að með dagskrártill. er engan veginn trygt, að sýslusjóðir greiði dýrtíðaruppbót af sínum hluta launanna. En þó er gefin um það svo ákveðin bending með þessu, að jeg geri ráð fyrir, að það muni víðast gert, ef sýslusjóðir sjá sjer það fært sakir efnahagsins. En þótt allir sýslusjóðir sjái sjer það eigi fært þegar í stað, er þó betri nokkur úrlausn þegar í stað heldur en að málinu sje skilyrðislaust vísað til stjórnarinnar.