10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í C-deild Alþingistíðinda. (2192)
40. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):
Jeg verð að segja, að jeg er dálítið hissa á þeirri afgreiðsluaðferð, sem hjer á að fara að taka upp. Jeg á að vísu ekki langa þingsögu að baki, en held þó, að það sje einsdæmi, að nefndarhluti leggi annað til í áliti sínu en þegar til framsögu kemur, svo á að fara að afgr. það með rökstuddri dagskrá, flókinni að orðalagi, sem sjálfsagt var að bera fram sem brtt. við frv. sjálft. Liggur því miklu nær, ef hv. deild vill afgr. málið, að vísa því nú til 3. umr. og bera þá fram brtt. um að fella alt niður nema ákvæðin um dýrtíðaruppbótina. En stjórnin virðist nú raunar ætla að vera svo frjálslynd að borga út eftir rökstuddri dagskrá, sem venjulega hefir verið álitin hógvær frávísun á málum. Þykir mjer þetta einkennileg afgreiðsla málsins og mun greiða atkv. á móti dagskránni.
Hv. þm. Mýr. (PÞ) gat ekki sjeð neinar alvarlegar afleiðingar af því, þótt afgreiðsla þessa máls biði svo sem eitt ár. Hann ætti að líta í hagskýrslurnar og sjá, að fyrir fám árum var barnadauði ákaflega mikill hjer á landi, en nú mun hann óvíða eða hvergi vera minni. Má óefað þakka það því, að yfirsetukonum hefir fjölgað og þær orðið mun betur að sjer en áður var. Jeg hefi ekki haft tíma til að athuga dauðsföll af barnsförum fyr og nú, — þar ber áreiðanlega að líkum brunni. Hjer er því um beint heilbrigðismál að ræða, og skilar sjer undir eins árangurinn af því. Jeg fyrir mitt leyti held, að best væri, að þingið veitti yfirsetukonunum nú annaðhvort fulla rjetting eða lýsti yfir, að það vildi ekkert sinna þeim. Sjerstaklega er þessi aðferð, að breyta launakjörunum með dagskrá, alveg ófær. Auk þess er hún ófullkomin að því leyti, að hún snertir aðeins helming af launum ljósmæðra til sveita og ekkert í kaupstöðum.
Hæstv. fjrh. (JÞ) talaði um, að það væri óvenjulega mikil launahækkun að þrefalda launin. Jeg skal viðurkenna, að þetta er hlutfallslega allmikil hækkun. En hún stafar af því, hve ógurlega lítil launin voru áður. Eins var það 1919, að þá voru laun ljósmæðra hækkuð meira en nokkurra annara starfsmanna hlutfallslega, enda voru þau áður ekki nema 75 kr. á ári. En þessi mikla breyting er eðlileg að því leyti, að áður þurftu ljósmæður lítið að kosta sig við nám, því að bæði var þetta styttra en nú, og auk þess voru þær mjög ríflega styrktar. En þetta þótti óheppilegt fyrirkomulag, því að ungum stúlkum þótti gaman að koma hjer til bæjarins og láta kosta sig, en slógu þá stundum slöku við námið. Leist mönnum því rjett, að þær legðu ögn meira ómak á sig, en fengju í staðinn betri kjör að náminu liðnu. Þetta, sem hjer er farið fram á, er því í allra mesta lagi tvöföldun.
Ástæður hv. minni hl. fyrir að vilja koma þessu frv. frá eru eins og gömlu meðulin, sem dugðu við öllu. (HStef: það virðast hafa verið bestu meðulin). — Já, að minsta kosti þau handhægustu. — Höfuðástæðan er sú, að það verði að spyrja sýslunefndirnar álits, áður en svo ógurlegir skattar væru lagðir á sýslusjóði, Jeg held, að það sje nú ekki siðurinn að spyrja gjaldþegninn, hvort hann vilji borga, þegar verið er að leggja álögur og skatta á menn. Enda vita menn líklega svona hjer um bil, hvert svarið verður hjá sýslunefndum.
Það var minst á það í þessu sambandi, að hreppstjórar hefðu lág laun. Það var nú svo, þegar jeg var í sveit, að hreppstjórarnir voru helstu höfðingjar í hreppum, og fengu þá tign færri en vildu. Mjer var raunar sagt um daginn, að nú væri sjerstaklega farið að velja fátæklinga í þessar stöður, hvað sem til er í því. Annars skal jeg vera manna fúsastur til að fylgja hreppstjórum í því að fá launaviðbót, ef þeir fara fram á hana og sýna einhver rök fyrir máli sínu. En það bara liggur ekkert fyrir um það og hefir aldrei gert.
Þá var talað um fordæmið. Sú grýla er nú ærið mikil með sig. Á þessu þingi fóru 2 prófessorar, fyrverandi og núverandi, fram á að fá nokkra viðbót við laun sín, svo að þeir gætu skrifað um áhugamál sín. Ein helstu rökin móti því voru, hve ógurlegt fordæmi það gæfi. En þá virðist mjer seilst nokkuð langt, ef menn óttast, að 100 kr. hækkun á byrjunarlaunum ljósmæðra dragi á eftir sjer hækkanir á launum háskólakennara og hæstarjettardómara.
Þá hefir það verið fært fram sem ástæða, að tekjustofnar sýslusjóða væru svo takmarkaðir, að ekki mætti leggja á þá meira en nú væri. Jeg hafði nú haldið, að útgjöldum sýslusjóðs væri skift á hreppana og þeir jöfnuðu þeim síðan niður eftir efnum og ástæðum. Tekjustofnar sýslusjóðs takmarkast því ekki af öðru en gjaldþoli einstakra gjaldenda. En um ýmsa tekjustofna ríkissjóðs má segja, að þeir eru í mesta máta takmarkaðir.
Til þess að koma í veg fyrir hina óvenjulegu afgreiðslu þessa máls, vil jeg því á ný beiðast þess, að hv. þdm. hleypi frv. til 3. umr. þá geta þeir menn, er nú flytja dagskrána, borið fram brtt. við frv. sjálft og fengið þær afgr. á þinglegan hátt.