21.04.1926
Neðri deild: 59. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í C-deild Alþingistíðinda. (2206)

83. mál, útrýming fjárkláða

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg veit ekki, hvort hv. nefnd hefir kynt sjer það, hve mikið fjárkláðinn hefir útbreiðst á síðustu árum. En það er mikið og fer sífelt í vöxt. Það má vera, að enn sjeu einstöku hjeruð laus við kláðann, en ef ekkert væri að gert til þess að hindra útbreiðslu hans, þá hygg jeg, að ekki yrði langt þess að bíða, að hann kæmist um land alt. Jeg álít, að það sje skylt að reyna að stemma stigu fyrir útbreiðslu þessa leiða sjúkdóms, og er jeg alveg sammála dýralækni um það, að alt kák sje ónýtt í þessu efni, og að ein böðun á ári sje gagnslaus til útrýmingar. Jeg skal ekki fara mörgum orðum um Myklestads böðunina, en hún hefir sýnt það, að það má mikið tefja fyrir kláðanum með einni böðun, en hinsvegar ekki hægt að útrýma honum. Eina leiðin er sú að reyna 2–3 böð með hæfilegu millibili, en það eru miklar líkur til þess, að með því megi takast að útrýma kláðanum, að minsta kosti svo, að hann geri ekki skaða á næstunni.

Út af því, sem hv. þm. Str. (TrÞ) sagði um skoðun dýralæknis á þessu, vil jeg geta þess, að jeg hefi skilið hann svo, að hann væri að berjast á móti þeirri almennu trú, að kláðanum sje hægt að útrýma með einni böðun. Vitanlega er nauðsynlegt að baða fje einu sinni á ári til þrifa, þó ekki sje hægt að skoða slíkt neina kláðaráðstöfun. Það er þetta stríð, sem dýralæknir á í, sem hefir gert það að verkum, að hann hefir viðhaft harðari orð en viðeigandi þykja af sumum. Það sýnir, að nefndin hefir ekki viljað taka undir neinn áfellisdóm, að hún hefir ekki viljað afnema þrifaböðin. Með einni böðun er ekki hægt að útrýma kláða, en þó er altaf nauðsynlegt að baða einu sinni á ári til þess að halda þrifum í fjenu.

Jeg verð að lýsa því yfir, að jeg er fylgjandi þessu frv., og þó að segja megi, að þeir landshlutar, þar sem kláða hefir eigi orðið vart, verði hart úti, þá er þetta öryggisráðstöfun einnig fyrir þessa landshluta, sem búast má við, að ekki verði lengi lausir við sjúkdóminn, sje ekkert að gert. Ef kláðinn fær að halda áfram að breiðast út, má vissulega búast við, að brátt komi að þessum hjeruðum, sem enn eru laus við hann. Það hagar víða svo, að fje gengur saman á afrjetti, þó að það geri það ekki í bygðum. Jeg vil benda á það, að t. d. í Skaftafellssýslu var lengi góð vörn í Fúlalæk, en nú er hann ekki lengur til varnar síðan brúin kom, og óhugsandi er, að Skaftafellssýsla geti varist kláðanum, ef hann magnast í Rangárvallasýslu, meðal annars af því, að hætt er við, að fje gangi saman að fjallabaki. Í sumum sýslum landsins er kláðinn á mjög háu stigi, en líklega einna verstur í Dalasýslu sem stendur.