24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2213)

83. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. (Árni Jónsson):

Jeg skil ekkert í hv. þm., að geta ekki verið búinn að koma fram með brtt. sínar. Dýralæknir hefir verið til viðtals í morgun, svo að hans vegna hefði það átt að vera hægt. Jeg er hræddur um, að þetta sje gert til að tefja fyrir málinu, og því er mjer illa við, að það verði tekið af dagskrá.