24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2216)

83. mál, útrýming fjárkláða

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg skal geta þess, að jeg er ekki viðriðinn þessa ósk um að taka málið af dagskrá. En mig langar til að spyrja hv. landbn.: Er hún búin að afla sjer þeirra upplýsinga, sem hún hjet svo góðu um að afla sjer? Hefir hún leitað álits hinna dýralæknanna? Mjer virðist, eftir því, sem fram hefir komið, málið vera mjög ófullkomlega undirbúið, og finst mjer það koma úr hörðustu átt, ef nefndin ætlar að spyrna á móti því, að það verði athugað til hlítar, þegar ekkert orð fylgdi því við 1. umr.