24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í C-deild Alþingistíðinda. (2217)

83. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. (Árni Jónsson):

Áður en jeg svara hv. þm. Str. (TrÞ) vil jeg fá úrskurð hæstv. forseta um það, hvort málið er hjer til umræðu eða ekki. En út af orðum hv. þm. Barð. (HK) vil jeg benda á, að hv. formaður nefndarinnar er ekki flm. að frv. Hann skar sig úr nefndinni og er andvígur því.