26.04.1926
Neðri deild: 62. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (2237)
83. mál, útrýming fjárkláða
Frsm. (Árni Jónsson):
Jeg skal reyna að vera stuttorður, því að umr. eru nú orðnar ærið langdregnar. Hv. sessunautur minn, þm. A.-Sk. (ÞorlJ), var enn að tala um skoðun og lagði eigi litið upp úr henni. Þessa skoðun hafa aðrir þegar hrakið, og þarf jeg eigi að eyða orðum að henni. Jeg vil aðeins gera örlitla athugasemd út af því, að haldið hefir verið fram, að landbn. gerði sjálf ráð fyrir skoðun í sínu frv. það var bent á það á síðasta fundi nefndarinnar, að þetta orð væri óþarft, og kom til orða að fella það niður. En þó fjell nefndin frá því, sakir þess að hún áleit, að þetta gerði ekkert til, væri meinlaust og gagnslaust.
Þessi sami hv. þm. (ÞorlJ) gat um, að í vetur hafi aðeins komið skýrslur um kláða úr 5 sýslum. Þetta var mjer nú kunnugt um, en jeg get eigi litið svo á, að kláðinn sje eigi víðar, þótt eigi hafi komið frekari skýrslur. Því að hjer kemur margt til greina. Fyrst og fremst má líta á það, að í vetur var óvenju-góð tíð, bændur vel heyjaðir, svo að sauðfje hefir þrifist vel. En svo sem jeg gat um við 2. umr. er nær ómögulegt að finna kláða á holdgóðu fje, sbr. gemlinginn hans Gísla gerlafræðings. Það má vel vera, ef vorið yrði hart, að kláði fyndist víðar og bærust þá skýrslur um það. Auk þess er ekki víst, að skýrslur hafi komið um kláða frá öllum þeim stöðum, sem hann hefir fundist. Að minsta kosti mun mega telja það víst, að kláði sje mun víðar en í þessum 5 sýslum.
En brtt. hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) álít jeg, að sje bein fjörráð við frv. Held jeg, að frv. væri betur felt, því að í henni er gert ráð fyrir eintómu káki, sem engin vissa er fyrir, að komi að gagni.
Þá var það vinur minn, hv. þm. Barð. (HK). Honum hefir atvrh. (MG) svarað. Hann talaði um, að skipa mætti böðun um öll sýkt og grunuð svæði. En nú er svo komið, að öll hjeruð landsins eru grunuð, enda þótt eigi hafi enn fundist kláði í þeim öllum.
Næst var það hv. þm. V.-Sk. (JK). Hann vildi helst senda stjórninni fjárkláðann, sakir þess að málið væri eigi nóg undirbúið. Þetta hefir kveðið við frá öllum hv. þm., sem vilja drepa frv., en hefir eigi við neitt að styðjast. Jeg þykist hafa greitt fyllilega úr öllum spurningum um undirbúning málsins, og ætti það að liggja nægilega ljóst fyrir öllum skynsömum mönnum. — Enda hefir t. d. hv. þm. Str. (TrÞ) fullkomlega sætt sig við upplýsingar þær, sem jeg gaf um kostnaðinn við útrýmingarböðunina. — Hv. þm. V.-Sk. (JK) sagði, að jeg hefði gefið í skyn, að kláðans hefði aldrei orðið vart í Skaftafellseða Þingeyjarsýslum. Þetta er alls eigi rjett. Jeg talaði aðeins um árin 1922– 1925.
Þá talaði hv.1. þm. S.-M. (SvÓ) og lagðist fastlega á móti frv. þótti honum allviðurhlutamikil sú framsókn að útrýma óþrifum. Sagði hann, að heyeyðslan við þetta yrði enn meiri en hv. þm. Str. (TrÞ) gerði ráð fyrir. Hann sagði, að þeir, sem hefðu gert lítið úr þessu, þektu ekkert til fjárgæslu. Nefndi hann þar til hæstv. atvrh. (MG) og mig. Sjálfur sagðist hann hafa fengist við fjárgæslu í 30 ár, svo enginn þarf að efa hans mikla vísdóm í þeim greinum. En það vill nú svo vel til, að fleiri af hv. þdm. en hann hafa gætt sauða. Þar á meðal eru ýmsir hv. meðnefndarmenn mínir í landbn. Hefi jeg borið þetta undir þá, sem mjer fróðari menn, og hafa þeir gefið mjer þær upplýsingar, að við hverja böðun þyrfti 2–4 daga innigjöf, eftir því hvort fjeð væri vant útbeit eða ekki. Þegar talað er um heyeyðslu, á það því aðeins við, að um útbeit geti verið að ræða. Ef fjeð er á gjöf hvort sem er, er ekki um neina eyðslu að ræða. Þetta ætti annar eins spekingur og hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) að sjá, án þess að honum sje bent á það.
Hv. þm. Str. (TrÞ) fanst lítið tillit tekið til sumra tillagna hans. Jeg sagði, að þær hefðu komið svo seint fram, að nefndinni hefði eigi gefist kostur á að taka þær til athugunar á sameiginlegum fundi. Hefir hún því eigi tekið afstöðu til þeirra. Jeg get þess til, að atvrh. gæti með bráðabirgðalögum frestað framkvæmd þessara laga, ef mjög illa horfði með heyfeng. Hefir hann nú sannað þessa tilgátu mína. En nú er það svo, að oft er góður heyfengur á Suðurlandi, þátt hann sje slæmur á Norður- og Austurlandi, og öfugt. Verður auðvitað varla hægt að taka mikið tillit til þess, þótt eigi heyjaðist vel í litlum hluta landsins. Bráðabirgðalög kæmu helst til greina, ef afarslæmt sumar væri um land alt, eins og t. d. 1918. Get jeg fyrir mitt leyti sætt mig við þessa úrlausn, og mun jeg greiða atkv. á móti till. bæði háttv. þm. Str. (TrÞ) og hv. 2. þm. Eyf. (BSt).
Vil jeg eigi orðlengja þetta frekar, en vona, að hv. deild komi kláðanum af sjer í kvöld og sendi hann til hv. Ed.