26.02.1926
Neðri deild: 15. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (2279)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Ólafur Thors:

Mjer heyrðist á hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), að hann mundi ekki ókvíðinn um, hverju hæstv. fjrh. (JÞ) mundi svara ræðu hans, Mjer er ánægja að lýsa því yfir, að jeg er í mörgum atriðum sammála hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ). Hann hefir þegar sagt ýmislegt af því, sem jeg hefði viljað taka fram, og mun jeg því tala skemur en jeg hefði hugsað mjer í fyrstu.

Það, sem gaf mjer tilefni til að taka til máls, var það, að hv. flm. (TrÞ) hefir getið mín í greinargerð frv. og í framsögu sinni, sökum þess, að jeg átti sæti í gengisnefnd. Jeg vil strax taka það fram, að það, sem hann fer með um mitt hugarfar í gengismálinu, er ekki rjett, en þó er þar ekki um svo mikla villu að ræða, að mér þyki ástæða til að leiðrjetta það nú.

Þegar jeg kom í gengisnefnd, hafði hún gert þær ákvarðanir að reyna að halda sterlingspundinu í kr. 26,25, þangað til í miðjum september. Mjer er ekki kunnugt um, hverjir stóðu að þessari ákvörðun, en hún hefir verið skilin á tvennan hátt. Sumir hafa skilið hana þannig, að hún væri bindandi, aðrir hafa skilið hana á þann hátt, sem siðar reyndist að vera rjettur, sem sje, að hún væri ekki bindandi.

Í tilefni af því, sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði um það misrjetti, að aðeins útflytjendur og einstaka framleiðendur hefðu vitað um þessa ákvörðun, vil jeg segja það sem mitt álit, að jeg held, að þetta hafi engum misrjetti valdið, því að útflytjendur hafa þá bygt verðlagið á þessu verði krónunnar, en samkepnin er það mikil um fisksölu, að menn selja ekki án þess að hafa talað við marga útflytjendur, og má því ætla, að verðlagið hefði skapast af þessari ákvörðun og orðið framleiðendum til góðs. En ákvörðunin var rofin, til stórtjóns fyrir þá, sem treystu henni, og vil jeg ekki fjölyrða um, hverjir því hafa valdið, nje að hve miklu leyti það voru sömu mennirnir, sem að henni stóðu.

Síðan breyttist verðlag krónunnar hröðum skrefum, og voru 22,15 í sterlingspundinu 27. október. Eins og hv. flm. frv. (TrÞ) hefir tekið fram, fylgdumst við að í að vera á móti breytingunni. Mjer þykir ástæða til að gera grein fyrir, af hverju jeg greiddi altaf atkvæði á móti hækkun krónunnar.

Þá vil jeg fyrst geta þess, að jeg leit svo á komu mína í gengisnefnd, að jeg væri þangað sendur samkvæmt þingvilja, til þess að stuðla að festingu eða hægfara hækkun krónunnar. Jeg taldi mjer skylt að hlýða þessu boði, og áleit, að þingið ætlaði að tryggja sjer framkvæmd þess með því að senda í nefndina 2 nýja menn, þó að það um leið gerði þá villu, að taka af þeim atkvæðisrjett. Jeg spurði því sjálfan mig, þegar ræða var um hækkun: Er þetta nauðsyn? Ef jeg áleit, að svo væri ekki, taldi jeg mjer skylt að sporna á móti, ekki síst, þegar hækkunin fór að verða ör.

Hækkunin var upphaflega bygð á því, að hækkunarmenn töldu hana óhjákvæmilega, þar sem danska krónan hækkaði, og síðar bygðu þeir á hækkun norsku krónunnar, af því að við verslum við Norðmenn með kjöt og keppum við þá á fiskmarkaðinum. þetta hafði auðvitað mikið til síns máls. En svo vildi svo óheppilega til, að norska krónan tók að lækka um leið og okkar króna hækkaði. Þá þurfti að finna nýjar ástæður fyrir hækkuninni, og þær voru fljótlega fundnar, nefnilega þær, að erlendan gjaldeyri bæri svo ört að bönkunum, að valdhafarnir töldu, að bankarnir gætu ekki haldið áfram að kaupa, vegna áhættunnar, sem mundi fylgja slíkum kaupum. Um þetta urðu miklar deilur í gengisnefndinni. Strax og hækkun krónunnar hófst, hjelt jeg fram mínum skoðunum í málinu. Mjer var kunnugt um, að útlendir menn höfðu keypt mikið af íslenskri vöru og samið um kaupin gegn greiðslu í íslenskum krónum, sem átti að fara fram vissan dag löngu eftir kaupin. Hjer er því um að ræða menn, sem voru búnir að taka á sig skuldbindingar í íslenskum krónum, þegar þeir sáu, að dönsk og norsk króna hækkaði, hjeldu þeir, að íslenska krónan mundi líka hækka, og gerðu ráðstafanir til að tryggja sig. Þannig byrjaði sjóðmyndunin. Það leið ekki á löngu áður en grunur þeirra varð að staðreynd. Krónan hækkaði, og lækkuninni var svarað með nýrri eftirspurn.

Jeg vil taka það fram, að það var ekki alveg rjett, sem hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) hjelt fram, um að aðalsjóðmyndunin hefði orðið á undan hækkuninni. Hún varð þvert á móti ekki fyr en eftir að hækkunin byrjaði.

Nú þykir mönnum undarlegt, að nokkur sje svo grunnhygginn, að kaupa vöru, þegar hún er að verða dýrari, en það, sem knúði menn til þess, var óttinn við, að hún yrði enn dýrari.

Þetta er önnur hlið málsins. Hin hliðin veit að þeim, sem vildu selja íslenska krónu, þeir sáu, að verðið fór daglega hækkandi, og fóru að engu óðslega. Þeir gátu heldur aldrei átt annað á hættu með því að bíða en að hin öra hækkun stöðvaðist. Þeir vissu, að sjóðir voru að myndast, og að ekkert vit var af þeim, sem stjórnuðu, að hleypa krónunni svona ört upp á við og láta hana svo strax falla. Þess vegna áttu þeir þá óvenjulegu aðstöðu verslunarmannsins, að ekki var hætta á verðlagslækkun á vöru þeirra, en von um hækkun. Þeir seldu því eðlilega ekki vöru sína, þ. e. a. s. keyptu ekki erlendan gjaldeyri. Af þessu hlaut að leiða sjóðmyndun, og það voru þessir miklu sjóðir, sem hækkunarmenn óttuðust. Þeir játuðu, að um „spekulation“ væri að ræða í Noregi og Danmörku, en neituðu, að hjer væri um slíka „spekulation“ að ræða, og samt, blanda þeir saman dönsku og norsku krónunni annarsvegar og íslensku krónunni hinsvegar.

Jeg vil skýra frá því, að þessi sjóðmyndun var ekki vottur um hagstæða verslun Íslendinga, því að jafnóðum og sjóðirnir stækkuðu, óx inneign erlendra manna í íslenskum bönkum, En þótt bankarnir hefðu þurft að eiga á hættu að kaupa erlendan gjaldeyri hærra verði en þeir seinna gátu selt fyrir, þá stendur svo á um bankana, að þeir skulduðu h. u. b. 500 þús. sterlingspund erlendis, sem þeir höfðu selt fyrir nálægt 30 kr. hvert sterlingspund. Þeir þoldu því að taka á sig áhættuna, vegna þess hagnaðar, er þeir höfðu á því að hafa selt þau sterlingspund á 30 kr., er þeir nú keyptu aftur á 26 kr. En aðalatriðið er, að hjer er um eðlilega sjóðmyndun að ræða, og var það fyrirfram sjáanlegt, að fara mundi eins og síðar varð raun á.

Loks kom að því, að gengisnefnd varð sammála um að stöðva hækkunina, og 27. október var sterlingspundið skráð á kr. 22,15. Enda þótt engin bein samþykt laga lægi fyrir um það, var hugur manna sá, að nú væri nógu langt gengið.

Skömmu síðar tóku spár manna að rætast. Þegar krónan hafði staðið í þessu verði nokkra daga, fór að draga úr eftirspurninni, en framboðið óx. Þetta sjest best á skýrslum yfir inneign íslenskra banka erlendis. Í ágústmánaðarlok munu þeir hafa átt 200 þús. sterlingspund. Þessi inneign hækkaði jafnt og þjett um leið og krónan hækkaði, og 2. nóvember, 5 dögum eftir að hækkunin hætti, var þessi inneign orðin 565 þús. sterlingspund. En nú taka sjóðirnir að rjena, svo að um áramót eru aðeins eftir 250 þús. sterlingspund, í lok janúarmánaðar 130 þús. sterlingspund, og í lok febrúarmánaðar 20 þús. sterlingspund. En jeg vil geta þess, að þessi 20 þús. sterlingspund segja ekki til um hina raunverulega aðstöðu út á við, því að enn stendur inni hjer 3½ milj. króna inneign erlendra manna.

Reynslan virðist því hafa staðfest, að sú hækkun, sem byggist á því, að bönkunum berst erlendur gjaldeyrir fyr en venja er til, sje ekki nauðsynleg og ekki gild ástæða til að virða að vettugi þingviljann.

Þá er enn ein hlið málsins, nefnilega hvort hækkunin sje æskileg. Jeg skal leiða fram hjá mjer nú að tala um kost og löst á festingu krónunnar. Um það munu vera skiftar skoðanir, en hitt eru allir sammála um, að þessi hækkun krónunnar var ekki heppileg, ef hún þyrfti að falla fljótt aftur, og yrði svo ef til vill verðminni en verið hefði, ef hækkunin hefði verið hægari, því þá hafa jafnvel sjálfir hækkunarmennirnir færst fjær markinu. Það skiftir því miklu máli frá þeirra sjónarmiði, hvort hækkunin er varanleg. Þau áhrif, sem hækkunin hefir haft á hagsmuni manna, er aðallega tilfærsla innan þjóðfjelagsins. Skuldir hins skulduga hafa vaxið, og eignir hinna hafa líka vaxið. Þessi tilfærsla nemur mörgum miljónum.

Því hefir verið haldið fram, að gengishækkunin hefði engin áhrif á aðstöðuna út á við. Þetta er tæpast rjett. Frá mínu sjónarmiði er það svo, að ef gengisbreyting eykur kreppuna svo, að atvinnufyrirtækið verður að hætta að starfa, minkar útflutningurinn meira en innflutningurinn, því að menn hafa sínar mannlegu þarfir, þótt þeir missi atvinnuna. Það hefir verið rjettilega tekið fram, að atvinnurekendur tapa á gengishækkun, en það er vegna þess verðfalls afurðanna, er kemur fram á tímabilinu milli tilkostnaðar og afrakstrar.

Þegar hækkunin skall á í ágúst s. l., var alt kjöt í eign og vörslu framleiðenda. Töluvert af fiski og síld var einnig eign innlendra framleiðenda og útflytjenda, en nokkur hluti hjerliggjandi sjávarafurða áttu erlendir útflytjendur.

Um suma hinna útlendu og innlendu útflytjenda er það að segja, að þeir gátu ekki eða vildu ekki standa við skuldbindingar sínar, heldur hlupu frá þeim, svo að loks lenti á innlendum framleiðendum, og er ekki ofmælt, að þeir hafi tapað miklu. Spurningin er, hvernig þeir voru undir það búnir. Mjer er kunnugast um sjávarútveginn, og þá helst um þá hlið hans, er að togurunum lýtur. Skal jeg víkja nokkrum orðum að togaraútgerðinni.

Árferði er, eins og menn vita, mjög misjafnt. Af því leiðir, að afkoma útgerðarinnar er mjög misjöfn ár frá ári. Annað árið er hagnaður, hitt árið er tap. Þegar vel árar, verður þessi útgerð að greiða alt að 30% arðsins í tekjuskatt og frá 10–50% í útsvar, en hvernig sem árar, verður hún að greiða þung útsvör, þó að hún kannske tapi hundruðum þúsunda. Þessi atvinnugrein verður að rekast með lánsfje og þarf að greiða 8–10% í vexti af því, auk þess sem hún kaupir erlendan gjaldeyri 1½% hærra verði en hún getur fengið fyrir hann. Allar helstu nauðsynjar framleiðslunnar mjög þungt tollaðar, og sjálf framleiðsluvaran með 1½%. Það er því augljóst, að þessi atvinnurekstur á mjög svo erfiða aðstöðu, þó að alment sje talið, að hjer sje um hreinustu gullnámu að ræða. — Þetta er nú rjett frásögn um aðstöðu þessa atvinnureksturs, alment talað.

En um getuna til þess að standast skakkaföll í bili, er það að segja, að arður ársins 1924 fór hjá flestum til greiðslu þeirra skulda, er safnast höfðu á undanförnum tapárum; en þeir fáu, sem betur stóðu að vígi fyrir góðærið 1924, hafa flestir varið arði þess árs til aukningar framleiðslutækjanna. Hafa þeir með því gert sitt til að stuðla að hækkun krónunnar, því geta þjóðfjélagsins til að bera þessa byrði hækkunarinnar byggist eingöngu á spörun eða fjármuna aukningu þess, og þess vegna verður að beina allri athyglinni að því, að styðja aukningu arðberandi eigna í þjóðfjelaginu, ef menn vilja á annað borð vinna að gengishækkun.

Jeg geri þetta innskot, vegna þess, að einn hv. ræðumaður hefir minst með nokkru kaldlyndi á þá kreppu, er sjávarútvegurinn á við að búa, en að svo miklu leyti, sem kreppan stafar af of mikilli framleiðslu, þ. e. a. s. af aukinni arðberandi eign í þjóðfjelaginu, færi vel á því, að minsta kosti, að hækkunarmenn skildu, að hún er þó afleiðing af lofsamlegum tilgangi, sem mishepnaðist.

Um mitt síðast liðið ár voru horfur um sæmilega afkomu útgerðarmanna, en síðari hluta ársins syrti að, og þó meir, er nær dró áramótum. Fór þar saman hin gífurlega gengishækkun, afarljelegur aflafengur og verðfall fiskjar í neyslulöndunum, svo að nú þegar er af mörgum framleiðendum dregið.

Útlitið fyrir afkomuna á þessu ári er því næsta geigvænlegt. Af útgerðarkostnaði togara eru um 60% gjöld í íslenskum kr., að mestu kaupgjald bæði á skipsfjöl og við fiskverkun.

Árlegur útgerðarkostnaður togara hefir hæst numið um 12–1300 þús. kr. Sje hann í ár áætlaður um 600 þús. kr., en það tel jeg ekki ósennilegt, að hann verði, ef skipunum er haldið til veiða lengur en yfir blá-vertíðina, eru þar af um 360 þús. kr. gjöld í íslenskum kr. þrátt fyrir hækkun krónunnar má heita, að þau að krónutali verði óbreytt í ár frá því, sem var í fyrra, en afurðaverð hefir á þeim tíma fallið einungis sakir gengishækkunar um meira en 20%. Ef jafnvægið á að haldast, verða hin innlendu gjöld að falla að sama skapi, en þar sem þau eru nær því óbreytt, eru afkomuhorfur hvers skips um 50–70 þús. kr. verri í ár en í fyrra. Það er því alt annað en björgulegt að líta fram á veginn, þegar þess er þá líka gætt, að heildarútkoma síðasta ár hefir fært útgerðinni tap.

Af þessu er bert, að þrengingar standa fyrir dyrum, og verður þó berara, þegar menn hafa hugfest, að miðað við gull er verðlag fiskjarins í neyslulöndunum töluvert lægra en í fyrra. — Og jeg bæti því við, sem minni skoðun, að jeg tel ekki ráðlegt að ætla okkar atvinnurekendum að þola sömu raun og Norðmönnum og Dönum, og það af þeirri einföldu ástæðu, að þar eru atvinnurekendurnir margfalt ríkari en hjer, og geta því haldið áfram að bera gengishækkun, án þess að jafnvægið raskist í peningamálum þeirra. Hjer eru atvinnurekendur yfirleitt svo fátækir, að þeir geta ekki til lengdar risið undir þeim byrðum, sem leiða af röskun jafnvægis milli afurðaverðs og framleiðslukostnaðar, vegna gengishækkunar.

Jeg fullyrði því, að núverandi verðgildi krónunnar er ekki í samræmi við þörf framleiðenda og afkomuhorfur atvinnulífsins. Og það byggist heldur ekki á glæsilegum hag bankanna út á við.

Jeg skal þá leitast við að leiða líkur að því, hvernig hagur landsins út á við muni verða í júlíbyrjun næstkomandi.

Síðast liðið ár var flutt mikið út af nýju framleiðslunni fyrir þann tíma (1. júní). Svo að segja hver uggi, sem veiddist úr sjó fyrstu 3–4 mánuði ársins, var ýmist seldur strax úr landi, sem saltfiskur, eða þurkaður í þurkhúsum og fluttur út í apríl og maí.

Í ár er þetta mjög á annan veg. Saltfiskur má heita óseljanlegur, og horfurnar um verðlag á þurkhúsþurkuðum fiski svo ljelegar, að ekkert þurkhús starfar. Má af því nokkuð marka ástandið, að um þetta leyti árs í fyrra voru öll þurkhús í landinu starfrækt nótt og nýtan dag, en nú ekki eitt einasta þeirra.

Við verðum því til 1. júlí í sumar að búa að þeim sjóðum, sem við eigum, en þeir eru um ½ miljón króna, og því sem við fáum fyrir óútflutta fyrra árs framleiðsluvöru, og skal þá gert ráð fyrir því, að hún verði öll útflutt og greidd fyrir 1. júlí, en það er þó næsta ólíklegt. Andvirði þessarar útflutningsvöru mun nema um 8 miljónum króna. Frá þeirri upphæð ber þó að draga nokkurn hluta inneigna erlendra manna í hjerlendum bönkum, en þær eru nú alls um 3½ miljón króna. Áætla jeg, að 2½ miljón kr. af þeim verði varið til greiðslu á útflutningsvörunni, og höfum við þá afgangs 6 miljónir kr., til þess að mæta notaþörfinni fyrir erlendan gjaldeyri til júlíbyrjunar.

En þá er spurningin: Er sú upphæð þá nægjanleg?

Ef við spyrjum reynslu síðasta árs, svarar hún því á þann hátt, að á tímabilinu frá 1. mars til 1. júlí hafi bankarnir selt erlendan gjaldeyri fyrir upphæð, sem nemur nú um 19 miljónum í ísl. kr. Yrði hið sama í ár, mundum við þurfa á að halda láni erlendis, er næmi 13 miljónum kr., og mundum þá, 1. júlí, skulda þessa upphæð erlendis. En 1. júlí síðast liðinn áttu íslensku bankanir inni hjá erlendum bönkum um 4 milj. kr., og yrði því allverulegur munur á aðstöðunni út á við.

En jeg skal taka það fram, og leggja áherslu á, að hægt er að gera ýmsar ráðstafanir til þess að draga úr eftirspurn erlends gjaldeyris, og tel jeg líklegt, að eftirspurnin verði minni í ár en í fyrra, enda hefi jeg aðeins reiknað með þeirri sölu erlends gjaldeyris, er fram fór í bönkunum, en það er á allra vitorði, að mjög mikil sala fór fram utan þeirra.

Þá verður mjer að spyrja: Er nú líklegt, að krónan haldi núverandi gildi sínu? Jeg hefi sagt, að jeg álíti hana of hátt metna. Hæstv. fjrh. (JÞ) sannar með órækum rökum í bók sinni „Lággengi“, að þótt þessu væri ekki til að dreifa, mundi mjög hætt við, að hún fjelli, því þegar afkoma atvinnurekenda sje sú, sem nú er hjer í landi, — þ. a. að atvinnurekendur tapa, — þá leiði, alment talað, altaf af því mikil verðfallshætta á gjaldeyri landsins. Er sú hætta óumflýjanleg, nema alveg sjerstakar, óvenjulegar og erfiðar ráðstafanir sjeu gerðar, — ráðstafanir, sem hæstv. fjrh. (JÞ) rjettilega bendir á, að af alveg eðlilegum ástæðum sjeu venjulega of seint framkvæmdar. Hirði jeg ekki að rekja það efni nánar, enda munu flestir hv. þdm. þekkja þessa bók, „Lággengi“.

En hvað á þá að gera? Jeg álít óheppilegt að ræða það mál á opnum deildarfundi, slíkt gæti orðið að tjóni. En það skal jeg segja hispurslaust, að það er alveg óþolandi, að löggjafarvaldið haldi áfram að skattpína borgarana til þess að skapa valdhöfunum aðstöðu til þess að stritast við að ríghalda í svo hátt verðlag krónunnar, að það eitt nægi til þess að koma framleiðslunni á knje.

Að endingu leyfi jeg mjer að leiða athygli hækkunarmanna að því, að það er viðurkend vísindaleg staðreynd, að sjerhverri gengishækkun verður að fylgja alveg tilsvarandi kauplækkun. Annars verður hækkunin aðeins gengissveifla, og krónan hlýtur þá að falla aftur í það verð, sem svarar kaupgjaldinu og öðrum framleiðslukostnaði.

Krónan íslenska er nú 82 gullaurar, en kaupgjaldið í landinu er ýmist sama eða hærra en þegar hún var 48 gullaurar. — Af þessu geta svo hv. þdm. dregið sínar ályktanir.