01.05.1926
Neðri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í C-deild Alþingistíðinda. (2285)
39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga
forseti (BSv):
Frá sex hv. deildarmönnum hafa mjer borist svolátandi tilmæli:
„Með skírskotun til 43. gr. þingskapanna krefjast undirritaðir þingmenn þess, að frv. til laga um stöðvun á verðgildi íslenskra peninga verði tekið á dagskrá neðri deildar, þegar atkvæði hafa verið greidd um þessa kröfu.“
Tryggvi Þórhallsson, Ingólfur Bjarnarson, Jörundur Brynjólfsson, Ásgeir Ásgeirsson, Sveinn Ólafsson, Pjetur Þórðarson.
Samkvæmt ákvæðum 43. gr. þingskapanna mun jeg bera tilmæli þessi undir atkvæði hv. deildar í byrjun næsta fundar.