03.05.1926
Neðri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í C-deild Alþingistíðinda. (2287)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Frsm. minni hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Jeg vil óska eftir samkomulagi milli hinna tveggja hluta fjhn. um, að máli þessu verði vísað til 2. umr. umræðulaust. Ef það samkomulag fæst, vinst vonandi tími til þess, að nál. meir hl. komi fram, áður en sú umr. fer fram.