05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (2295)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Fjármálaráðherra (JÞ):

Það er ekki nema eitt mál eftir á dagskránni, ef þetta verður tekið út, og mjer finst ástæða til, af því að svo mjög er liðið á þingtímann, að æskja eftir, að ef þetta mál verður tekið af dagskrá, sem jeg engan veginn fer fram á, verði það ekki til þess að tefja tímann. Stjórnin hefir ekki óskað eftir þessu, og mjer finst hæpið, að hægt sje að taka ástæðu hv. frsm. meiri hl. (JAJ) gilda.