06.05.1926
Neðri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í C-deild Alþingistíðinda. (2310)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Jakob Möller:

Enda þótt umræður hafi gefið tilefni til þess að segja margt, ætla jeg þó ekki að halda langa ræðu, því að mjer finst, satt að segja, umr. vera orðnar óþarflega langar. (Fjrh. JÞ: Alveg rjett). Alveg rjett, sagði hæstv. fjrh. (JÞ) . Hann sagði þó í dag, að ágreiningsatriðin milli meiri og minni hl. gæfu tilefni til margskonar hugleiðinga um málið. Eftir nál. er ágreiningurinn hjer ekki annar en sá, hvort taka eigi ákveðna afstöðu til gengismálsins nú eða síðar. Minni hl. vill taka ákvörðunina nú og samþykkja verðfesting eða stýfingu, en meiri hl. vill láta halda genginu föstu til næsta þings og sjá, hvað setur. En hann vill ekki taka ákvörðun um það nú, hvað síðar eigi að gera, en eins og stendur í nál., álítur hann, að fyrir geti komið, að færa þurfi gengið niður og jafnvel stýfa það lægra en í gullgildi. Aðalágreiningurinn er aðeins um það, hvort eigi að taka ákvörðun um þetta eða fresta því til næsta þings.

Meiri hl. telur ekki, að það sje neinn vinningur að lækka gengið, ef komast má hjá því, og álítur, að það verði ekki til annars en að gera glundroðann enn meiri en hann nú er. Hann vill því, sem sagt, ef unt er, halda því gengi, sem nú er, og hyggur, að verðlagið muni laga sig eftir því. Það er ekki ómögulegt, að það geti orðið eins og hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) alls ekki vill neita, þó að hann áliti erfiðleikana svo mikla, að ekki muni borga sig að leggja út í þá. Ef á að festa gengið, þá veit maður ekki, hve langt á að fara í því að elta þetta kaupmáttarjafngengi. Hjer er runnið alveg blint í sjóinn. Það geta jafnvel komið áhrif, sem verka beint á móti, og það er lítt hugsanlegt, að hægt sje að reikna þetta út.

Meiri hl. vill vinna að því, að verðlagið komist í samræmi við það gengi, sem nú er, og sjá síðan, hvort það muni borga sig að hækka krónuna upp í gullgildi. En til þess að samræma þetta, þarf kaupgildið að komast í samræmi við afrakstur atvinnuveganna. Náist það ekki, er alt í óvissu í framtíðinni, enda þótt verði farið að rjála eitthvað við gengið, og það getur jafnvel leitt til hækkunar á kaupi eða að minsta kosti tekið af alla lækkun.

Nú höfum við haft ákveðið gengi í ½ ár, og verðlagið hefir verið að laga sig eftir því. Við viljum halda í þennan fasta punkt, en ekki kasta okkur út í hringiðuna. Það er auðvitað erfiðara sem stendur, því að við eigum við kreppu að búa, verðlag á útfluttum afurðum er fyrir neðan það, sem venjulegt er, og ekki hægt að segja um, hvað kaupgjaldið má vera, til þess að komast í samræmið við gengið.

Það kom fram í umr., og vil jeg undirstrika það, að hagsveiflur gætu komið á venjulegum tímum, án þess að hafa áhrif á gengið, þegar peningarnir hafa fast gildi, seðlar innleysanlegir með gulli. Það hefir verið látið of mikið undan slíkum hagsveiflum nú að undanförnu, og af því stafar að miklu leyti sú ringulreið, er við komumst í og ógöngur. Gengið hefir verið notað til þess að jafna upp hagsveiflur, sem það á alls ekki við.

Um dagskrártill. get jeg sagt fyrir mig, að jeg vil halda mjer við orðalagið, að halda beri genginu föstu. Er það því mjög skýrt.

Rökst. dagskráin er stíluð til stjórnarinnar, og þar sem hún segir, að eitthvað beri að gera, þá ætlast þingið til, að stjórnin taki það til greina eða geri það. Í seinni málsliðnum er sagt, að treysta megi, að þetta sje hægt að gera án fjárhagslegrar áhættu. En ef ekkert ætti að gera, væri auðvitað um enga áhættu að ræða. Till. er því ekki í ósamræmi við nál., þótt hæstv. fjrh. (JÞ) líti svo á. Það er að vísu tekið fram á öðrum stað, að meiri hl. álíti, að ef yfirlýsing kemur um, að þetta eigi að gera, þurfi eigi ríkisábyrgð. Vegi það svo mikið, að til slíks þurfi ekki að taka. Það er óþarfi að vera að deila um skilning á þessu, en það er rjett, að nefndarmenn hafa viljað taka mismunandi ríkt til orða um þetta atriði.

Mjer finst, að deildin ætti að geta komið sjer saman um að afgreiða málið á þennan hátt og fresta því til næsta þings.

Í nágrannalöndunum hafa menn verið að glíma við þetta mál, t. d. í Noregi, en það hefir dregist á langinn að ákveða, hvað gera skuli, og er vandsjeð, hvaða leið þeir fara. En það er óeðlilegt og í raun og veru óheppilegt, að taka ákveðna afstöðu til þessa máls, án þess að vita, hvað þeir gera. Okkur liggur heldur ekkert á að taka endanlega ákvörðun fyr en á næsta þingi.

Þeir, sem ekki vilja hækka gengið upp í gullkrónu, vilja hætta þar á hækkunarbrautinni, sem verðlagið kemst í jafnvægi við gengið. En hækkunarmenn álíta, að jafnvægi geti komist á, þó að ekki sje stýft. Ef það nú sýnir sig, að þessu jafnvægi er eigi hægt að ná, og ef reynslan sýnir, að málinu verði ekki ráðið á annan hátt, þá gæti bæði meiri hl. og minni hl. nefndarinnar orðið ásáttir um að festa gengið.