10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í C-deild Alþingistíðinda. (2334)
39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg mun eigi nota þessa 3. umr. málsins til þess að fara út í almennar athugasemdir um frv. það er svo þrautrætt, að þess gerist ekki þörf, enda hafa menn nú víst myndað sjer ákveðnar skoðanir um það. En jeg vil nota tækifærið til þess að lýsa yfir því, að það gladdi mig stórlega, hverja afgreiðslu þetta mál fjekk við 2. umr. Jeg þykist að vísu vita, að málið gangi ekki endanlega fram nú, en jeg lít svo á, að meðferð þess hjer í háttv. deild hafi staðfest ummæli mín um það, að stefnu frv. hafi aukist mjög fylgi hjá þjóðinni.
Jeg gat ekki skilið hv. frsm. meiri hl. (JAJ) öðru vísi en svo, að hann hjeldi því fram, að það gæti komið fyrir, að þetta yrði gert seinna, að festa verðgildi peninganna, þó það væri ekki gert nú. Að þessu leyti get jeg verið mjög glaður út af því, hvað stór spor hafa verið stigin áfram í máli þessu í þá átt, sem jeg vil vera láta. En málið er svo flókið og vandasamt, að jeg gat ekki gert mjer neina vissa von um bestu afgreiðslu, er jeg bar það fram.
En afgreiðsla þess hjer í háttv. deild hefir verið fram yfir allar vonir og sýnir það, að ekki getur liðið á löngu þangað til meiri hluti þings og þjóðar hverfur að því ráði, sem jeg hefi barist fyrir.
Út af dagskrá hv. þm. Borgf. (PO) vil jeg koma með nokkrar almennar athugasemdir og beina þeim til flm. (PO), háttv. frsm. meiri hl. (JAJ) og hæstv. fjrh. (JÞ).Vil jeg þá fyrst vekja athygli á því, að í upphafi dagskrárinnar stendur: „Í trausti þess, að landsstjórn, bankar og gengisnefnd“ o. s. frv.
Formlega vær rjett, að hv. flm. till. (PO) feldi gengisnefnd burtu úr dagskránni, því að afstaða hennar er öll önnur en stjórnar og banka, því að seinustu mánuðina hefir hún ekki haft neitt sjálfstætt vald. Þeir tveir menn, sem bætt var í nefndina á síðasta þingi, hafa þar ekki atkvæðisrjett og geta því ekki beitt sjer þar.
Því næst vil jeg beina því til hæstv. fjrh. (JÞ), hvaða skilning hann leggur í þetta orðalag dagskrárinnar:
„Í trausti þess, að landstjórn, bankar og gengisnefnd kosti kapps um að afstýra því, að veruleg röskun verði á gengi“ o. s. frv.? Hvað hefir hæstv. ráðh. (JÞ) víðtæka heimild í þessu orðalagi? Má hann leggja mikið af lánstrausti ríkissjóðs í hættu með því að ganga í ábyrgð fyrir bankana? Eða má ríkissjóður taka stór gengislán? Hvað skilur hæstv. ráðh. (JÞ) við orðin „veruleg röskun“? Hæstv. ráðh. (JÞ) hefir að þessu viljað keppa að því, að ná krónunni í gullgildi, og að minsta kosti fyrst og fremst sporna á móti lækkun hennar. En eru orðin „veruleg röskun“ ekki svo óákveðin, að eftir þeim mætti t. d. keppa að hægfara hækkun? Og þá kemur spurningin um það, hvað er hægfara hækkun? Var það hækkunin á síðasta ári, er nam 17–18%? Skilur hæstv. fjrh. (JÞ) orðalag dagskrárinnar svo, að hækka megi krónuna álíka á þessu ári?
Þá vil jeg spyrja hv. flm. (PO) og þá aðra menn, er með honum standa að þessari dagskrá, hvað þeir eiga við með því, að vísa málinu til stjórnarinnar, banka og gengisnefndar þetta eru einmitt sömu aðiljarnir, er höfðu málið með höndum árið sem leið. Þessa dagskrá mætti því skoða sem traustsyfirlýsingu til þeirra. Á að skoða hana sem samþykki þingsins á því, hvernig gengismálið hefir verið framkvæmt síðast liðið ár? Mjer virðist svo, þar sem málinu á að vísa með fullu trausti til þessara aðilja. Jeg óska þess, að hv. flm. (PO), sem ekki er vanur því að vera myrkur í máli, gefi nú skýr svör við því, hvað hann meinar í þessu efni.
Annars skilst mjer, að á bak við dagskrána liggi eitthvert samkomulag milli hæstv. fjrh. (JÞ) og þeirra manna, sem að henni standa, um það, að hann hafi lofað að hækka ekki krónuna. En yfirleitt er dagskráin svo loðin, að það munu eins dæmi, að jafnmikið stórmál sem þetta sje afgreitt með slíkri dagskrá. Og það skal jeg segja hv. flm. (PO), sem jeg hefi haft þá ánægju að vinna með síðan jeg kom á þing, að þessi dagskrártill. er mjög ólík honum. Yfirleitt má segja það um dagskrána, að það er óverjandi að ganga frá málinu með henni, því að þar er alt í lausu lofti.
Það má segja, að það sjeu þrjár stefnur uppi um það hjer í hv. deild, hvernig menn vilja festa gildi peninga. Og jeg verð að segja, að það má rjettlæta þá stefnu hæstv. fjrh. (JÞ) og hv. 2. þm. Reykv. (JBald), að láta krónuna ná fyrra gullgildi og halda henni í því gildi. En þó er jeg sannfærður um það, að það er stórkostlega hættulegt fyrir landið og jafnvel óframkvæmanlegt.
Önnur leiðin í þessu máli er sú, sem kemur fram í brtt. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að keppa að föstu verðgildi krónunnar í samræmi við núgildandi skráningu. þessi stefna er hættuleg eins og afstaðan er nú, og þegar tekið er tillit til þess, hvað atvinnuvegirnir eru skattlagðir. Þó er hún betri en sú leið, sem þeir vilja fara, hv. 2. þm. Reykv. (JBald) og hæstv. fjrh. (ÞÞ).
Þriðja leiðin er sú, sem hv. frsm. minni hl. fjhn. (ÁÁ) vill fara með mjer í þessu máli. Jeg vona, að það sannist síðar, að það er rjett leið, og að hún verði valin.
Dagskráin er „compromis“ milli manna, sem hafa gerólíkar skoðanir og keppa í þessu máli sinn í hverja áttina. Það verður aldrei farsælt að afgreiða stórt mál þannig. Hefir hv. flm. (PO) spurt bankana, og þá sjerstaklega Landsbankann, hvort þeir álíti slíka afgreiðslu forsvaranlega? Jeg efast um, að þeir álíti það. Jeg hygg, að stappi nærri, að sómi þingsins sje í veði, ef mál þetta verður afgreitt með slíkri dagskrá, ef þar að auki verður ofan á, að bankamálið komist ekki gegnum þingið. Þm. mega bera kinnroða, er þeir koma fram fyrir kjósendur sína, þegar þingið hefir staðið í 100 daga og látið stærstu málin fá slíka afgreiðslu.