10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í C-deild Alþingistíðinda. (2346)
39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg bar fram nokkrar spurningar viðvíkjandi dagskrá hv. þm. Borgf. (PO). Jeg hefi nú fengið svör við þeim frá hv. flm. sjálfum (PO) og frá sumum flokksmönnum hans, þeim hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) og hæstv. fjrh. (JÞ). Og jeg verð að segja, að jeg er að mörgu leyti ánægður með þau svör. Hv. þm. Borgf. (PO) gaf mörg skýr svör og góð, og sama er að segja um hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh). Í framkomu þeirra var og gott aðhald fyrir stjórnina, því að þeir ljetu ekki liggja í láginni, hvernig þeim var innanbrjósts eða hvernig þeir vilja láta fylgja dagskránni fram, og veita þeir þannig hæstv. fjrh. betri aðstöðu, og er þetta hinn besti stuðningur fyrir hann, sem að öðru leyti hefir allerfiða aðstöðu, enda vafðist honum mjög tunga um tönn í svari sínu til mín. Hann verður sem sje að sætta sig við að hafa þá aðstöðu, líkt og sumir menn í fornöld urðu að hafa, er þeir voru kúgaðir til sátta, Þetta er honum augsýnilega nauðungarsætt. Hv. þm. Borgf. (PO) sagði í spaugi, að hann hefði í fyrra þurft að stappa í mig stálinu, til þess að jeg stæði stöðugur, þar sem jeg hefði átt að standa. Jeg get svarað honum þessu sama í þetta skiftið, nú er það jeg, sem hefi ósleitilega stappað í hann stálinu, og vona jeg, að hann dugi nú vel þessu máli. Síðari ræða hans var og miklu gleggri og skýrar kveðið að orði en er hann talaði fyrst fyrir dagskrártill, sinni. Hann var allloðinn í fyrstu, en hefir nú tekið sjer fram, sjerstaklega eftir að hv. 2. þm. Rang. (KlJ) hafði komið fram með brtt. sína við dagskrána, svo nú sýnir hann hreinni liti en áður.
Jeg vil leiðrjetta það, sem sagt hefir verið, að jeg hafi fallið frá kröfu um það, að fulltrúar atvinnuveganna í gengisnefndinni hefðu þar atkvæðisrjett; jeg taldi það þó betra en ekki, að þeir ættu þar sæti, þó þeir hefðu ekki atkvæðisrjett. Ef menn aðeins vildu fletta upp í þingtíðindunum, geta menn gengið úr skugga um þetta.
Þá vil jeg vekja athygli á því, sem hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) tók fram og lagði áherslu á, að ekki skyldi kosta neinu til vegna gengisráðstafana. Þetta vil jeg undirstrika, og eins það, að hv. flm. dagskrárinnar ber þetta sama fram. Þetta verður því að telja sem ákveðinn vilja deildarinnar sjerstaklega, er menn minnast afgreiðslu þessa máls hjer við 2. umr.
Hv. flm. (PO) hefir lýst því yfir, að dagskrána beri ekki að skoða sem traustsyfirlýsingu til þeirra stjórnarvalda, sem henni er beint til. Þykir mjer vænt um þessi orð, því þau lýsa fullri vanþóknun á þeim skaða, sem orðinn er af gengishækkuninni, og um leið er þetta þung og alvarleg áminning um að láta ekki slíkt henda aftur. Jeg hefði búist við, að hv. flm. dagskrártill. (PO) hefði borið hana undir stjórn Landsbankans, því að hjer stendur alveg sjerstaklega á og liggur beint við, er málinu skal meðal annars vísað til hans. Jeg hefði verið miklu ánægðari með till., ef þetta hefði verið gert. Hitt er minna ánægjuefni, er mestu andstæðingar í þessu máli fylgjast að í því að styðja þessa dagskrártill. út frá gerólíkum forsendum, bæði hækkunarmenn og andstæðingar þeirra.
Þá hafði jeg örfá orð til að segja við hæstv. fjrh. (JÞ). Hann svaraði mjer litlu, en sló öllu upp í spaug. Hann kvaðst varla ætla, að jeg mundi hirta hann, þó að hann tæki lán til að hindra lækkun krónunnar. Hann veit vel, að þetta getur ekki komið fyrir. Honum er vel kunnugt um aðstöðu íslensku bankanna erlendis, sem stendur. Þeir skulda um 10 milj. króna, eða um 100 kr. á nef hvert á landinu. þetta er tekið eftir síðusu skýrslum, sem ljóslega bera með sjer, hve ásandið er nú afskaplega alvarlegt.
Jeg tel mig yfir höfuð hafa farið góða ferð á þessari fyrirspurnarferð minni. Jeg hefi fengið skýr og góð svör frá flestum, sem jeg beindi spurningum mínum til, og málið hefir við það orðið skýrara fyrir þetta. Jeg tel dagskrána að ýmsu leyti aðgengilega, með þeim skýringum, sem henni hafa verið látnar fylgja, þó að jeg greiði atkv. á móti henni.