30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í C-deild Alþingistíðinda. (2358)
62. mál, slysatryggingar
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Jeg hefi ekki öllu fyllri skilaboð að færa frá sjútvn. en þau, sem lesa má í nál. á þskj. 364. Eins og frv. á þskj. 110 ber með sjer er þar gert ráð fyrir þrem heldur smávægilegum breytingum á slysatryggingarlögunum frá síðasta þingi. Það er sem sje gert ráð fyrir: í fyrsta lagi, að undanþiggja tryggingarskyldu þá, sem vinna að fiskverkun utan þurkhúsa. Í öðru lagi, að sjómenn, sem vinna fyrir hlut af afla, eða þeir, sem fá kaup í hundraðsgjald af arði fyrirtækisins, taki þátt í iðgjaldsgreiðslunni, sem nú hvílir öll á útgerðarmanninum, eftir lögum nr. 44, 1925. Í þriðja lagi er gert ráð fyrir, að ríkissjóður taki öllu meiri þátt í iðgjaldagreiðslu fyrir sjómenn á róðrarbátum og litlum vjelbátum en ætlast er til eftir lögum síðasta þings. Einnig að færa undir þau ákvæði skipverja á vjelbátum 5–12 rúmlesta, sem nú hlíta sömu reglum og gilda fyrir stærri skip.
Eins og álit nefndarinnar ber með sjer, hefir verið leitað umsagnar stjórnar slysatryggingar ríkisins. Hefir hún talið, að með reglugerðarbreytingum mætti ná tveim fyrri atriðunum. Þriðja og síðasta breytingin, þátttaka ríkissjóðs í iðgjaldagreiðslunni, næst aftur á móti ekki nema með lagabreytingu. Nú álítur nefndin ekki rjett, meðan eigi er fengin fyllri reynsla um þessi lög, að eiga við svo smávægilegar breytingar sem þessar. Vill hún reyna þau fyrst um sinn til næsta þings, enda lítur meiri hl. hennar svo á, að þegar lögunum verði breytt á annað borð, beri að gera meiri breytingar en hjer er farið fram á. Bendingar um þær breytingar, sem nefndin vill gera, á sínum tíma, eru á þskj. 364. En í stórum dráttum er álit hennar, að skyldutrygðir eigi að vera allir eða þó flestir, sem hættulega vinnu stunda, og að ríkinu beri að taka nokkurn þátt í tryggingargjöldum allra, jafnframt og þeir slysatrygðu einnig greiði nokkurn hluta þeirra. En eftir lögum síðasta þings eru öll þessi gjöld einhliða lögð á vinnuveitanda. Hinsvegar telur nefndin rjett, að hið fyrsta sje gerð reglugerðarbreyting um undanþágurnar, sem felast í 1. og 2. gr. frv. Með þetta fyrir augum vill meiri hl. nefndarinnar afgreiða málið með þeirri rökstuddu dagskrá, sem stendur í nál. hennar. Þegar nokkur reynsla er fengin, ber að voru áliti að hverfa að róttækari breytingum á þessari löggjöf en nú liggur fyrir.