30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í C-deild Alþingistíðinda. (2362)

62. mál, slysatryggingar

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg bið hæstv. forseta að hafa nafnakall um till. hv. 2. þm. Reykv. (JBald), því að hún er bersýnilega gerð til þess að eyða málinu. Jeg vil aðeins minna hv . deild á það, að sannað hefir verið með fullum rökum, að smábátaútgerðin verður mjög illa úti, eins og lögin nú eru framkvæmd. Bátar, sem hafa kringum 200 kr. ágóða af vertíðinni, þurfa að borga á 3. hundrað kr. í iðgjöld. Jeg veit um það, að sjómenn hafa sjálfir ekkert á móti því að taka þátt í iðgjöldunum.