30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í C-deild Alþingistíðinda. (2367)
62. mál, slysatryggingar
Atvinnumálaráðherra (MG):
Mjer þótti þjóta nokkuð einkennilega í tálknunum á hv. 2. þm. Reykv. (JBald). Jeg hefi ekkert sagt um það, hvort jeg mundi koma fram með breytingar á lögunum á næsta þingi. Jeg hefi lofað því að athuga lögin til næsta þings og koma þá með breytingar á þeim, ef mjer þætti ástæða til þess.
Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) álítur, að jeg geti ekki gefið út reglugerðarbreytingu, og heldur, að það væri lagabrot. En hv. þm. hefir ekki sýnt fram á, að til þess þurfi lagabreyting, að breyta reglugerðinni í þessa átt. Um breytinguna viðvíkjandi fiskvinnu utan þurkhúsa tel jeg óhætt að fara eftir till. stjórnar slysatryggingarsjóðsins, sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) vill láta ráða, nema þegar hún er á móti honum.
Um hitt atriðið segir slysatryggingarstjórnin, að hún telji, að heimilt sje að breyta því. Hún segir: — „En við hyggjum, að ef hásetar fá ekki kaup, heldur aðeins hluta af afla, þá muni verða litið svo á, eftir núgildandi lögum, sem um samlagsútgerð sje að ræða, svo að þó útgerðarmaður bátsins eða formaður eigi að standa skil á iðgjöldum fyrir alla hásetana, samkvæmt 7. gr., þá verði þeir samt eigi taldir í þjónustu hans, heldur sjálfir atvinnurekendur, og falli því ekki undir ákvæðin í 1. málsgr. 6. gr., heldur beri sjálfir iðgjaldið hver fyrir sitt leyti ...“
Hv. þm. (JBald) sagði sjálfur í fyrra í umr. um þetta mál: „Jeg get vel tekið undir það, að sjómenn, sem eru upp á hlut, og taka þátt í útgerðinni, ættu að greiða sjálfir iðgjöld sín, ef það þætt skifta nokkru máli.“
Hv. þm. (JBald) segir ennfremur umræðunum í fyrra: „Einnig er nú svo frá gengið, eftir brtt. nefndarinnar við 21. gr., að stjórnin getur altaf tekið upp nýja flokka, er henni þykir það fært, og auk þess getur Alþingi altaf gripið inn í og hert á, því ekki þarf annað en með einfaldri þál. að skora á stjórnina að taka nýja flokka upp til, tryggingar ....“
(JBald: Þetta er alt annað). Það er einkennilegt, að það á að vera hægt að taka upp nýja flokka, en ekki fella niður flokka! Annars eru þessar yfirlýsingar hv. þm. um, að jeg hafi lofað stórfeldum breytingum á tryggingunum, helber misskilningur. Jeg hefi gengið inn á þá fyrri, af því að hún felst tvímælalaust í lögunum. Um þá síðari hefi jeg sagt, að hún er vafasöm, en fái stjórnin yfirlýsingu deildarinnar um, að hún líti svo á, að breytingin sje lögleg, er það mikill styrkur. Hjer er alls ekki verið að breyta lögunum með dagskrá, eins og hv. þm. komst að orði. Hjer er aðeins verið að skýra lögin.