19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í C-deild Alþingistíðinda. (2398)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Forsætisráðherra (JM):

Jeg ætla að fylgja hv. frsm. meiri hl. í því, að tala mjög stutt. Jeg þarf ekki að tala mikið um einstök atriði, sem í raun og veru er það eina, sem vel á við við þessa 2. umr. Jeg þarf ekki að taka það fram, að jeg er að mestu leyti á sama máli og hv. meiri hl. nefndarinnar, og þar af leiðandi á móti minni hl. Ræða hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) gefur mjer ekki tilefni til að segja svo sem neitt. Jeg held líka, að rjettast sje að láta framsögumennina eigast við um það, sem þá greinir á um. Jeg get það því fremur, þar sem jeg kann ekki um að bæta það, sem hv. frsm. meiri hl. (MJ) hefir sagt. Að tala um málið frá byrjun yrði frá minni hálfu lítið eða ekkert annað en endurtekning á því, sem hv. frsm. meiri hl. hefir sagt. Jeg hygg það alveg rjett hjá honum, að málið hafi verið svo þaulrætt á undanförnum þingum, að ekki muni vera verulegt gagn að því að taka upp aftur þær umræður. Jeg hygg, að hvorki hafi verið sagt nje verði sagt annað en það sama, sem hjer hefir oft verið sagt áður og öllum hv. þingmönnum er kunnugt.

Það, sem aðallega greinir á um og hefir greint á um, er tvent, fyrst hve mikið skuli kent í latínu og hve mikla þýðingu sú námsgrein hafi fyrir lærða skóla eða þá skóla, sem búa unga menn undir stúdentspróf. Þetta er gömul deila, sem jeg sje ekki ástæðu til að tala frekar um. Hv. frsm. meiri hl. hefir skýrt það atriði frá sínu sjónarmiði, og tel jeg hans álit rjett vera. Jeg held, að ef þeir væru sjálfum sjer samkvæmir, sem hæst mæla á móti frekara latínunámi í mentaskólanum, ættu þeir að komast að þeirri niðurstöðu, að alls enga latínu mætti kenna, þeir hafa þó fæstir farið svo langt. Hitt atriðið, sem verður líklega af mörgum talið aðalatriðið, það er skifting skólans, í gagnfræða- og lærdómsdeild. Minni hl. nefndarinnar segir, að sú skifting hafi reynst vel. Jeg held, að þeir, sem kunnastir eru málinu, líti yfirleitt svo á, að hún hafi ekki reynst vel. Þetta er auðvitað ekki gott að sýna, svo glögt sje, þeim, sem ekki hafa rannsakað málið. Mjer finst samt ofur skiljanlegt, ef litið er á málið eins og það liggur fyrir, að heppilegra sje að hafa skóla, sem bíta menn undir stúdentspróf, óskifta. Mjer skilst, að þó lærði skólinn, eða hvað menn vilja kalla hann — þessi langa ræða háttv. frsm. minni hl. (ÁÁ) um nafnið var alveg aukaatriði — yrði hafður óskiftur, væri ekki sjálfsagður hlutur að slíta með öllu sambandi hans við Akureyrarskólann. Við, sem þekkjum eldri skólann, vitum, að það var tiltölulega auðvelt að komast upp í 1.–4. bekk. Hvernig þessu er hagað annarsstaðar á Norðurlöndum gerir kannske ekki svo mikið til. Hv. frsm. minni hl. nefndi mörg lofleg dæmi frá skólum Englendinga. Mjer skildist hann þakka mest leikfiminni, að þaðan kæmu vitrir menn. Raunar er nú þessi leikfimi mest iðkuð utan skólanna. En það er vitanlegt, að þessir menn eru allir latínumenn upp á gamla móðinn. Þeir tala hana og skrifa og halda henni stöðugt við, og jeg veit, að þeir þykjast eiga latínukunnáttunni mikið að þakka. Almennasta mótbáran gegn þessari breytingu er sú, að ekki verði sjeð fyrir nægri gagnfræðakenslu. Jeg held, að þessi mótbára sje ekki rjett. Jeg held, að einmitt yrði mikið gagn að því, ef endir fengist bundinn á þessa þrætu um skipulag mentaskólans. Þá væri hægt í alvöru að snúa sjer að gagnfræðaskólamálinu.

Jeg tel vafasamt, að hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) hafi rjett fyrir sjer í því, að þetta frv. muni ekki rísa upp aftur, ef það verður drepið nú. Jeg gæti betur trúað því, að þessi þræta hjeldi áfram og tefði fyrir góðu skipulagi á þessum málum, Jeg held, að það væri bara ljettir að koma þessu máli frá, svo hægt væri að snúa sjer að hinu.

Hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) talaði eins og það væri eitthvert ódæði eða mikil einfeldni, að hugsa til að gera stúdentamentuninni hærra undir höfði en gagnfræðamentuninni. Enginn ætlast til þess. En þetta er alveg sitt á hvoru sviði. Hann neitar því þó ekki, að háskólamentun sje nokkuð annars kyns en gagnfræðamentunin.

Stúdentar verða hvort sem er flokkur fyrir sig, þegar þeir koma í háskólann og gerast háskólaborgarar. Hitt kemur engum í hug, að stúdentar fái aftur það vald og sjerstöðu, sem þeir höfðu á miðöldum.

Jeg ætlaði ekki að fara út í almenn atriði, því hv. frsm. meiri hl. (MJ) gerir það eftir þörfum. Jeg skal aðeins minnast á nokkur atriði, sem hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) drap á. Hann mintist á fjölgun kennara og hafði eftir rektor mentaskólans, að þeim þyrfti að fjölga um 7–9. Það er bygt á því, að ekkert fækki í skólanum, þó breytingin komist á. Þetta er eflaust ekki rjett hjá háttv. frsm. minni hl. og rektor, því að nemendum mundi fækka að miklum mun. Þó er þetta ekki af atriði í þessu sambandi, því ef haldið yrði áfram í sama horfi og nú og tekið á móti öllum þeim unglingum, sem fá vilja frekari mentun en kostur er á hjer í barnaskólanum, yrði að fjölga kennurum ekki aðeins um 7, heldur miklu fleiri. Því miður er nú komið svo, að föstu kennararnir við mentaskólann eru orðnir alt of fáir, þó með sjeu taldir aukakennarar, sem hafa sömu laun og fastir kennarar. Það hefir reynst erfitt að fá hæfa menn í kennarastöðurnar, sem kemur til af því, að þingið hefir verið ófúst á að hrófla neitt við launalögunum. En það líður að því, og mun þess ekki langt að bíða, að bráðum verður nauðsynlegt að fjölga kennurum við skólann, ef sama fyrirkomulag á skólanum á að haldast framvegis, en það er til skaða, bæði fyrir nemendur og kennara.

Það getur vel orðið, og um það skal jeg ekki segja að svo stöddu, því það er ekkert „principmál“, og jeg hefi sjálfur ekkert sjerstaklega á móti því, — að Akureyrarskóli fái rjett til að útskrifa stúdenta eins og skólinn í Reykjavík, Jeg hygg aðeins, að það sje ennþá all-athugavert að ráðast í að breyta þessu þannig, að þetta verði hægt, meðan það reynist jafnerfitt og það er nú að fá nógu vel mentaða kennara til skólans hjer syðra. Reynslan hefir sýnt, að það er mjög erfitt að fá kennara, sem nógu vel eru undirbúnir til að vera hæfir kennarar, til að fara þangað norður.

Þá skal jeg stuttlega snúa mjer að brtt. hv. meiri hl. mentmn., og get jeg yfir höfuð fallist á þær allar.

1. brtt. get jeg alveg fallist á, a og b-liðina sjerstaklega, en eins og sagt er í nál., er c-liðurinn nýmæli í þessum lögum, sem er sennilegt, að sje til nokkurra bóta frá því, sem var.

Sömuleiðis get jeg vel fallist á 2. brtt. og er þar b-liðurinn sjálfsagt til mikilla bóta. Fer brtt. í frjálsari átt, og tel jeg það rjett vera, og yfir höfuð hefi jeg ekki að athuga við brtt. þær, sem hjer fara á eftir. Þó gæti verið, að 5. brtt. væri dálítið óþörf. Jeg held yfir höfuð, að ekki sje þörf að ljetta á kennurum, þó að þeir þurfi að leiðrjetta skriflegar úrlausnir, meðan að ekki eru heimtaðar af þeim meira en 24 kenslustundir á viku. Jeg hygg þess vegna, að varla sje þörf þessarar ívilnunar, nema um aldraða menn sje að ræða og þurfi að hlífa þeim þess vegna; en meðan menn eru í fullu fjöri, gerist þessa vart þörf. Það er ekki til neins, að fást um það, þó þetta komi dálítið misjafnt niður, því svona er þetta ætíð og fer eftir eðli hverrar námsgreinar, sem kend er. Annað mál væri það, ef um það væri að ræða, að hækka stundatöluna á viku, sem kennurum væri gert skylt að kenna. En nú er ekki svo. Auk þess er gert ráð fyrir, að kennarar fái frí frá kenslustörfum á tilteknu árabili, og þá held jeg, að búið sje að fara sæmilega langt til þess að verða við öllum sanngjörnum kröfum af þeirra hendi.