25.02.1926
Neðri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

17. mál, fjáraukalög 1925

Jón Baldvinsson:

Jeg skildi ummæli hæstv. fjrh. (JÞ) svo, að fjvn. hefði viðurkent rjettmæti ferðastyrkjanna með því að taka þá upp hjá sjálfri sjer. En jeg vildi taka það fram út af þessum styrkjum, sem landsstjórnin hefir greitt án þess að hafa heimild til, að slíkar greiðslur eru ekki rjettmætar, sjerstaklega þeir styrkir, sem Alþingi hefir áður felt. Á þinginu 1923 var feldur ferðastyrkur til biskupsins til þess að sækja biskupafund á Norðurlöndum. Ef því stjórnin hefir greitt þennan 600 kr. ferðastyrk í heimildarleysi, þá er slíkt vitanlega algerlega órjettmætt. En mjer heyrðist hæstv. fjrh. vera að hlakka yfir því, að nefndin hefði tekið þetta upp hjá sjer af sjálfsdáðum, og þætti mjer fróðlegt að vita, hvort svo væri.