25.02.1926
Neðri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (245)

17. mál, fjáraukalög 1925

Frsm. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg get gefið þær upplýsingar af hálfu nefndarinnar, að hún bar þessa till. fram eftir viðtali við hæstv. forsrh. og samkvæmt ósk hans. Nefndinni var kunnugt um, að biskupi var boðið á biskupafundinn og að hann fór, og nefndin taldi sjálfsagt, að biskupinn væri ekki settur skör lægra en aðrir, sem fara út á svipaða fundi. nema síður væri.