10.03.1926
Neðri deild: 27. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í C-deild Alþingistíðinda. (2450)
58. mál, menntaskóli Norður-og Austurlands
Flm. (Bernharð Stefánsson):
Jeg þarf ekki mörgu að svara þeim 2 hv. þm., sem hafa andmælt mjer. Hvað snertir hv. þm. Ak. (BL), mótmælti hann aðeins einu atriði í minni ræðu, nefnilega því, að það hefði verið merkisviðburður í sögu Akureyrarskólans, þegar þál, var samþykt í hitteðfyrra. Jeg vil ekki deila við hv. þm. (BL) um svona lítilfjörlegt atriði. Það kann að vera, að þingið hafi gert annað en að heimila stjórninni það, sem hún hafði áður heimild til að gera. En jeg býst ekki við, að neitt hefði orðið úr framkvæmdum, ef stjórnin hefði ekki fengið þessa hvatningu. því kalla jeg þetta merkisviðburð. Nú er í Akureyrarskólanum hafin kensla, sem tekur yfir 4. og 5. bekk, og jeg býst við, að næsta vetur verði bætt við kenslu, sem samsvarar 6. bekk, svo að þeir, sem nota sjer þetta til fulls, eiga þá aðeins eftir að taka prófið. Jeg verð því að kalla það merkisviðburð í sögu skólans, að þetta framhaldsnám komst þar á, en auðvitað ræður hv. þm. Ak. (BL) því sjálfur, hvað hann kallar þetta, og get jeg ekki verið að deila við hann um það.
Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) kom inn á ýmislegt í ræðu sinni og mótmælti meðal annars því, að Akureyri væri hollari bær en Reykjavík, og fór í því sambandi að tala um fyllirí. Það, sem jeg átti við, var ekki fyllíri, heldur hitt, að jeg álít Akureyri beinlínis hollari heilsu ungra manna en Reykjavík. Mun jeg ekki standa einn uppi með þá skoðun. Hv. þm. (MJ) talaði um, að hollasti staðurinn væri sá, sem gæfi skólanum mest skilyrði. Hvaða skilyrði eru það, sem Reykjavík gefur? Jú, hjer í Reykjavík eru náttúrulega stærri og merkari söfn en á Akureyri, en mjer er nær að halda, að ekki sje að öllum jafnaði farið með nemendur þangað. Ekki skil jeg í, að hv. þm. (MJ) eigi við bíóin hjerna, og yfirleitt finst mjer Reykjavík ekki svo merkilegur bær, að þessi munur geti verið mikill.
Þá sagði hv. þm., að þegar talað væri um að fá skóla á Akureyri, þá væri sagt, að hún væri ódýrari bær en Reykjavík, en svo þegar talað væri um laun embættismanna þar, væri sagt, að hún væri dýrari. En hvað sem þessu líður, þá er það víst, að hver einasti hlutur, sem jeg þarf að kaupa, er dýrari hjer en á Akureyri. Jeg hygg nú líka, að hægt sje að sanna það með tölum, að Akureyri er mikið ódýrari bær en Reykjavík. Allar landbúnaðarafurðir eru þar t. d. mikið ódýrari, það vita allir, verð á mjólk mun vera þar alt að helmingi lægra en hjer, og svo er um fleira. Á húsaleigu munar einnig áreiðanlega miklu, og svona mætti lengi telja. Enda hefi jeg heyrt nákunnuga menn segja það, að nemendur á Akureyri komist af með að minsta kosti þriðjungi minna fje yfir veturinn heldur en nemendur í Reykjavík.
Hv. þm. (MJ) vildi gera lítið úr þeim sögulega rjetti, sem jeg taldi okkur Norðlendinga eiga til skólans, og sagði, að þessi rjettur væri niðurfallinn nú. Um það má lengi deila, hvort sögulegur rjettur hafi nokkurt gildi eða ekki, en jeg vil benda hv. þm. (MJ) á það, að hann var ekki ómerkur þáttur í sjálfstæðisbaráttu okkar, og á þeim árum býst jeg við, að það hefði þótt undarlegt, að telja hann einskis virði. Það, sem hv. þm. (MJ) sagði um biskupsstólana fornu í því sambandi, sannar alls ekki, að hinn sögulegi rjettur Norðlendinga sje niður fallinn, þver á móti. Við Norðlendingar vorum sviftir bæði biskupsstóli og skóla með yfirgangi og eigum því sögulegan rjett til að fá hvorttveggja aftur. En hjer er aðeins farið fram á skólann.
Þá talaði hv. þm. (MJ) um „hreppapólitík“ í sambandi við þetta mál. Jeg verð að segja, að það er skrítin „hreppapólitík“, þar sem um er að ræða velferðarmál tveggja fjórðunga landsins.
Jeg vil spyrja hv. 4. þm. Reykv. (MJ), hver sje kominn til að segja um, hvort skólafyrirkomulagið sje betra, tvískiftur mentaskóli eða óskiftur lærður skóli? Hina lærðustu menn greinir á um það, og finst mjer því ekki úr vegi, að prófa þetta hvorttveggja samtímis, því að með því eina móti er hægt að ganga úr skugga um, frá hvorum skólanum nemendurnir eru betri.
Hv. þm. (MJ) viðurkendi, að mjög væri óþægilegt fyrir Norðlendinga og Austfirðinga, ef sambandinu við lærða skólann væri slitið og ekkert kæmi í staðinn. Þessvegna ætti að vera námskeið til þess að greiða götu nemenda úr gagnfræðaskólanum í lærða skólann. Þetta væri auðvitað betra en ekkert, en kennarar hjer mundu hafa mikið um það að segja, hvort þessir nemendur kæmust í skólann eða ekki. Jeg hefi heyrt það, að kennarar hjer hafi oft haft ríka tilhneigingu til þess að gera utanskólanemendum erfiðara fyrir en hinum við próf.
Þá sagði hv. þm. (MJ), að þó að mentaskóli yrði settur á stofn á Akureyri, mundi hann ekki bæta úr fyrir öðrum en Akureyringum sjálfum, og þeim, sem byggju þar í kring. En mjer finst þetta svo mikil fjarstæða hjá hv. 4. þm. Reykv. (MJ), að jeg sje ekki ástæðu til að fara nánar út í það, því að það vita allir, hvað það er mikið ódýrara fyrir menn af öllu Norðurlandi og Austurlandi að sækja skóla til Akureyrar heldur en hingað.
Nú kem jeg að því atriði, sem mjer fanst veigamest atriði í ræðu háttv. þm. (MJ). Hann sagði, að ef þetta frv. væri samþykt, væru Norðlendingar um leið sviftir gagnfræðaskólanum og hefðu bara lærða skólann. Ef þetta væri rjett hjá hv. þm., væri það töluverð ástæða gegn þessu frv. En jeg hygg, að til þessa komi ekki, enda er þörfin ekki eins brýn nú og áður á gagnfræðaskóla, vegna þess, að nú er búið að setja á stofn alþýðuskóla bæði á Eiðum og Laugum, og búast má við, að fleiri komi á eftir. Norðlendingar og Austfirðingar hafa því um fleiri leiðir að velja nú en áður og ekki eins mikil þörf á gagnfræðaskólanum fyrir sveitaunglinga, sem ekki ætla að halda lengra, eins og áður var. En það má að minsta kosti gera ráð fyrir því, þó að skólinn á Norðurlandi verði lærður skóli, að gagnfræðadeildin geti fullnægt Akureyri og grendinni.
Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) spurði, hvað vekti fyrir mjer með því að vilja hafa skólann tvískiftann. Meðal annars vildi jeg ekki útiloka, að menn gætu aðeins stundað þar gagnfræðanám og tekið gagnfræðapróf. Jeg geri ekki ráð fyrir, að allir, sem koma í skólann fyrir norðan, læsu til stúdentsprófs, enda væri það ekki æskilegt.