10.03.1926
Neðri deild: 27. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í C-deild Alþingistíðinda. (2451)
58. mál, menntaskóli Norður-og Austurlands
Sveinn Ólafsson:
Hv. flm. (BSt) er að mestu leyti búinn að taka fram í sinni síðustu ræðu það, sem jeg vildi sagt hafa. Jeg get því verið fáorður og minst aðeins á örfá atriði.
Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) stóð upp til þess að draga fram eitt atriði úr ræðu háttv. flm. og mótmæla því, en hann varð býsna víðförull, þegar á leið ræðuna. Þetta eina atriði, sem honum þótti ofmælt hjá hv. flm., var um betri hollustuhætti fyrir nemendur á Akureyri en í Reykjavík. Hv. flm. (BSt) hefir svarað þessu að nokkru leyti, en jeg vil þó leyfa mjer að bæta þar við nokkrum orðum.
Þegar um hollustuhætti er að ræða, verður að greina milli andlegrar og líkamlegrar hollustu, því að ekki fylgjast þær ætíð að. En ef miða á við hvorttveggja, þá vil jeg leyfa mjer að benda á eitt atriði, sem styður það, að hollustuhættir sjeu yfirleitt betri á Akureyri en í Reykjavík. Akureyri er mitt í stóru landbúnaðarhjeraði, og meira undir áhrifum sveitalífsins en nokkur annar kaupstaður landsins. Hún er aðeins miðstöð í stórri sveit, einni þeirri blómlegustu, enda gætir sveitaáhrifanna meira þar en í Reykjavík eða nokkrum öðrum bæ hjerlendis. Ef til vill má líta á það eins og nokkurskonar trúaratriði hjá mjer, — en jeg held því fram, að sveitirnar sjeu yfirleitt miklu hollari nemendum til dvalar en bæirnir, og því síður vil jeg kjósa bæ fyrir dvalarstað nemenda, sem hann er gegnsósaðri í aðfluttri sníkjumenningu, svo sem Reykjavík er.
Þá vil jeg enn gera litla athugasemd við ræðu hv. 4. þm. Reykv. (MJ). Í henni var aðallega tvent, sem mjer þótti óviðfeldið. Annað var það, að hann talaði um, að „hreppapólitík“ lægi að baki óskinni um mentaskóla á Akureyri. Mjer þykir nú vafasamt, hvað eigi að leggja í orðið „hreppapólitík“, því að þetta orð er misnotað, ekki síst af hv. 4. þm. Reykv. (MJ). Eða hvað á að nefna þá stefnu, að vilja rígbinda allar mentastofnanir við Reykjavík? Jeg held það liggi nokkuð nærri, að nefna hana „hreppapólitík“, eða öllu heldur „bæjarpólitík“. Að minsta kosti er það eitthvað náskylt henni og ekki af betri endanum.
Þá er hitt atriðið hjá hv. þm (MJ), að metnaður Norðlendinga eða Hólastólsmanna eigi að vera sterkasta hvötin í þessu máli. Hann virðist halda því fram, að krafan ætti rætur í fornri skiftingu biskupsdæmanna. Út af því vildi jeg aðeins benda hv. 4. þm. Reykv. (MJ) á það, að þeir, sem nú standa að óskinni um mentaskóla nyrðra, eru ekki aðeins menn úr hinu forna Hólastifti, Krafan er ennfremur studd af Austfirðingum, sem töldust til Skálholtsstiftis, og krafa þeirra því ekkert skyld við metnað eða meting milli stiftanna að fornu.
Þessi krafa er sprottin af alt öðrum rökum. Hún er eðlilega af því runnin, að menn úr hjeruðum, sem fjarlæg eru höfuðstaðnum, eiga erfiðari aðstöðu til að sækja nám hingað en þeir, sem búa í nærsveitum eða næstu hjeruðum. Þetta er það, sem veldur óskunum um mentaskóla á Akureyri framar öllu öðru, og þær óskir eru rjettmætar. Það er þessvegna að snúa út úr, og aðeins til þess að spilla fyrir góðu máli að túlka óskir þessar sem „hreppapólitík“ og metnað Norðanmanna, eins og háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) gerði.
Get jeg látið þetta nægja að sinni og býst við, að málið fái góðan byr hjá hv. mentmn. En jeg mun fylgja þessu máli með athygli áfram og sjá hvað setur.