29.04.1926
Neðri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í C-deild Alþingistíðinda. (2471)

63. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Jakob Möller:

Jeg ætla aðeins að segja örfá orð út af ræðu hv. þm. Borgf. (PO). Hann var eitthvað að tala um, að við vildum draga undir Reykjavík og teldum, að leiklist hjer væri eitthvað æðri en annarsstaðar á landinu. Þetta er algerlega tilefnislaust hjá hv. þm. (PO). Ef komið gæti til mála að setja á stofn þjóðleikhús á nokkrum öðrum stað á landinu en í Reykjavík, mundi sá möguleiki vera ræddur. En engum dettur slíkt í hug, ekki einu sinni hv. þm. Borgf. (PO). Leiklist í Reykjavík er alveg eins skattlögð til þjóðleikhúss og leiklist annarsstaðar á landinu eða aðrar skemtanir.

Hv. þm. (PO) talaði um, að verið væri að gera öðrum landshlutum rangt til. En skilur ekki hv. þm. (PO), að hjer er um að ræða alþjóðarstofnun, og er ekkert einsdæmi hjer, að þá sje tekið af almannafje, enda er það gert í öllum menningarlöndum. Og það getur hv. þm. Borgf. (PO) reitt sig á, að vegur landsins í heild sinni vex við það, að þjóðleikhúsið kæmist upp. Þar koma til greina allir landshlutar, án tillits til þess, hvort þeir eru stutt eða langt frá Reykjavík. En ef þessi vísir, sem nú hefir myndast til sjóðs, er drepinn eða framkvæmdir tafðar að óþörfu, verður það alstaðar lagt okkur út til hinnar mestu smánar. Jeg skal geta þess, að einn merkur vísindamaður hefir nýlega dregið þá ályktun af leiklistarást Íslendinga, að þeir mundu vera með best mentuðu þjóðum heimsins.