01.05.1926
Neðri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í C-deild Alþingistíðinda. (2474)

63. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Frsm. meiri hl. (Árni Jónsson):

Viðvíkjandi brtt. frá meiri hl. allshn. á þskj. 461, hefi jeg aðeins það eitt að taka fram, að hún er aðeins til að samræma ákvæði frv. betur, eins og frv. var orðað eftir 2. umr. Hefi jeg svo ekki fleira um þetta að segja; þetta er of augljóst atriði til að þurfi að fara þar um fleiri orðum.