15.03.1926
Neðri deild: 31. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í C-deild Alþingistíðinda. (2487)

64. mál, gengisviðauki

Fjármálaráðherra (JÞ):

Hv. 2. þm. Rang. (KlJ), formaður fjhn., hefir tekið fram ýmislegt af því, sem mjer finst, að jeg þurfi að segja við þessa 1. umr. Jeg get tekið undir það með háttv. þm. (KlJ), að jeg álít, að þetta frv. sje öldungis óþarft, þar sem það mál er þegar í höndum fjhn. En hinu er þó ekki að neita, að það kemur fram greinilegur stefnumunur hjá flm. þessa frv. og hjá fjhn., eftir því, sem sjá má af því, sem frá henni er komið. Hv. fjhn. leggur til, í samræmi við vilja stjórnarinnar, að gengisviðauki á vörutolli, það er að segja á nauðsynjavörum, verði feldur niður frá 1. næsta mánaðar, en gengisviðauki á öllum óþarfa-vörum, svo sem tóbaki og áfengi o. s. frv., verði látinn haldast fyrst um sinn. Hv. flm. þessa frv. (JBald) vill nú fara aðra leið, hann vill halda gengisviðauka á nauðsynjavörum alveg óbreyttum einn ársfjórðung lengur en fjhn. leggur til, þó með nokkurri lækkun til loka yfirstandandi árs, en að nokkru leyti vill háttv. þm. (JBald) svo lækka og afnema jafnsnemma gengisviðauka á óþarfavörunum. Jeg er ekki í neinum vafa um það, hvoru megin mjer beri að standa í þeim ágreiningi, sem hjer kemur fram, það er fjhn. megin. Og jeg held það væri rjettast fyrir hv. flm. (JBald), eftir að fjhn. hefir borið fram frv. um sama efni, að taka aftur sitt frv. áður en það er komið lengra, nema að háttv. þm. (JBald) sje virkilega áhugamál að láta eitt og hið sama yfir hvorttveggja ganga, að því er snertir þessa tolla. Ef það virkilega er bjargföst sannfæring háttv. þm. (JBald), þá getur enginn bannað hv. þm. að berjast fyrir slíku á þingi.