15.03.1926
Neðri deild: 31. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í C-deild Alþingistíðinda. (2499)

49. mál, afnám laga um bráðabirgðaverðtoll

Flm. (Jón Baldvinsson):

Jeg fæ ekki betur sjeð en að hæstv. fjrh. (JP) hafi nú tekið alt aftur, sem hann sagði um mig í fyrstu ræðu sinni og í upphafi þessarar ræðu. Kom þetta af eðlilegum ástæðum, þegar hann fór að hugsa um, hvað hann hafði gert. Hann hrósaði sjer af því, að hann hafi ljett af sköttum, en það er einmitt hið sama, sem farið er fram á í tillögum mínum. Það sjer hann nú, hæstv. fjrh. (JÞ), og því er eðlilegt, að hann snúi við blaðinu. Hins vegar vildi hann nú láta líta svo út, sem hann væri að gefa viðurkenningu þeim, er hjálpað hefðu til að reisa við fjárhaginn. Það vill nú svo vel eða illa til, að ekki eru nema örfáir dagar síðan sami hv. ráðh. (JÞ) bar Framsóknarflokknum bruðlunarsemi á brýn, og kvaðst eigi vænta neinnar gætni þaðan í fjármálum. það eru nú 10 menn í þeim flokki hjer í hv. deild, — og nú hefir hann bætt mjer við, eða öllu heldur tekið mig út úr, og hefi jeg ekki neitt á móti því.

Hæstv. fjrh. (JÞ) getur ekki neitað því, að tillögur hans á síðasta þingi og till. hans um eftirgjöfina, um daginn, miðar alt að því, að gera fjárhaginn erfiðan. Má þar meðal annars minna á bruðlunartillöguna frægu, um varalögregluna í fyrra. Já, hæstv. fjrh. (JÞ) hlær; honum finst víst nokkuð oft minst á þetta mál. Hann hefir nú fundið þá öldu, sem á er skollin frá þjóðinni út af þessu máli, og vill því ekki láta minnast á það framar, heldur reyna að láta það falla í gleymsku. Og eigi má heldur minnast nú á tekjuskattstillögur hans í fyrra.