22.03.1926
Neðri deild: 37. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í C-deild Alþingistíðinda. (2512)

76. mál, járnbraut frá Reykjavík til Ölfusár

Flm. (Jörundur Brynjólfsson:

) Jeg get þegar svarað hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ) því, að jeg gat þess eigi í ræðu minni, að frv. væri flutt fyrir hönd hæstv. stjórnar, en hitt sagði jeg, að hún hefði undirbúið málið, og flutti henni þakklæti mitt fyrir það. Annars þykist jeg flytja frv. fyrir alla þjóðina, og ef ekki fyrir hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ), þá vafalaust fyrir niðja hans.