30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í C-deild Alþingistíðinda. (2558)
111. mál, bæjargjöld í Reykjavík
Halldór Stefánsson:
Í fjarveru hv. flm. (HK) skal jeg mæla aðeins örfá orð. Ástæður hv. flm. (HK) eru teknar fram í greinargerð frv., og vil jeg aðeins vísa til þeirra og vænti þess, að hv. þdm. hafi kynt sjer þær: Að öðru leyti er ekki ástæða til að ganga inn á málið; jeg vil aðeins benda á, að ástæðum fyrir málinu er þannig háttað, að sjálfsagt er, að það fái athugun í nefnd. Vil jeg fyrir hönd hv. flm. (HK) óska, að málið fái að ganga til 2. umr. og til allshn., að umr. lokinni.