03.05.1926
Efri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í C-deild Alþingistíðinda. (2580)
109. mál, landhelgissjóður
Sigurður Eggerz:
Það hefir væntanlega ekki mikla þýðingu, að halda uppi löngum umræðum. Jeg sje, að sjútvn. hefir orðið sammála fjvn. um að leggja þetta til, og með því er frv. náttúrlega trygt fylgi hjer í hv, deild. En jeg hefi ekki getað sannfærst um, að þetta verði ekki til þess að draga úr vexti sjóðsins.
Fyrst og fremst segir í nál., að það sje skilyrði hjá nefndinni, sem hún setji, að sjóðurinn verði látinn vaxa árlega um upphæð, sem nemi þessu 20 þús. kr. ríkissjóðstillagi. En jeg verð að líta svo á, að þó að fram komi eitt nál. í þessa átt, þá muni það fljótt fyrnast. Jeg leyfi mjer að gera ráð fyrir, að þegar árin liða, og ekki eru góðar ástæður í fjárlögunum og þarf að halda á sjóðnum, þá muni þetta litla nál., sem hjer liggur fyrir í dag, verða alveg gleymt. Enda er það svo, að þótt eitthvað sje sagt í nál., þá bindur það ekki nútíðina og ennþá síður framtíðina. Það er þess vegna sýnilegt, að sje miðað við það, að landhelgissjóðurinn eigi að vaxa að allverulegum mun, þá verður þessi tillaga til þess að draga úr vexti hans. Enda hefir samviskan slegið nefndina, svo að henni hefir þótt vissara að taka það fram, að nauðsynlegt væri að leggja 20 þús. kr. við höfuðstólinn, sem svaraði ríkissjóðstillaginu.
Mjer hefði í raun og veru fundist, að það hefði mátt minnast þess manns, sem var frumkvöðull að því, að þessi sjóður var stofnaður, Sigurðar Stefánssonar, á þeim degi, sem árangur sjóðsin sýnir sig í því, að skip er keypt fyrir hans fje. Það hefði mátt minnast hans á annan veg heldur en að kippa burtu því tillagi, sem hann kom á hjer á Alþingi.
Jeg veit, að það þýðir ekkert að halda uppi umræðum. Úr því að sjávarútvegsnefnd og fjvn. eru sammála, er gangur þessa máls viss gegn um deildina. En mín skoðun í þessu máli er það, að það sje í raun og veru engin ástæða til að fara að búa til neinar hömlur á landhelgisvarnirnar. Það er mín sannfæring, að þótt menn sjeu nú svo ánægðir yfir því, að komið er eitt íslenskt skip til landvarna, þá verði í framtíðinni gerðar ennþá meiri kröfur til landvarna, svo miklar kröfur, að það veitti ekki af, þótt sjóðurinn fengi að vaxa með þessum styrk ríkissjóðs.
Samkvæmt þessari skoðun minni mun jeg ekki hika við að rjetta einn upp höndina á móti þessu frv.