03.05.1926
Efri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í C-deild Alþingistíðinda. (2584)

109. mál, landhelgissjóður

Jóhannes Jóhannesson:

Fjárveitinganefndin vill ekki draga neitt úr landhelgisvörnunum, en henni fanst það krókaleið, að greiða úr ríkissjóðnum í landhelgissjóðinn árlega, en heimta svo af honum 125 þús. kr. eða hærri upphæð árlega, til landhelgisvarnanna, sem ríkissjóður kostar að öðru leyti.

Það er gengið út frá því að þá er nýtt skip er keypt, líði alllangur tími þangað til næsta skip er keypt, svo að með því að leggja vexti við sjóðinn árlega þangað til, getur, hann aukist stórkostlega. Nefndin gerir ráð fyrir, að eftirleiðis, eins og hingað til, verði sjóðurinn látinn leggja fje til landhelgisvarnanna, í hlutfalli við tekjur hans næsta ár á undan, að vöxtum fráskildum. En henni finst það óeðlilegt, að ríkissjóður rjetti með annari hendinni það, sem hann tekur með hinni.