05.05.1926
Efri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í C-deild Alþingistíðinda. (2587)

109. mál, landhelgissjóður

Sigurður Eggerz:

Jeg skal ekki gefa tilefni til langra umræðna um þetta mál að sinni. Vil jeg aðeins vísa til þess, sem jeg hefi sagt við fyrri umr. þessa máls, að þetta frv. geti orðið til að draga úr vexti landhelgissjóðs. Þar sem þetta er stórt mál, vil jeg biðja hæstv. forseta að hafa nafnakall um frv.