06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í C-deild Alþingistíðinda. (2617)

106. mál, hæstiréttur

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi aðeins mega leggja enn áherslu á, að hjer er um verulega stórt mál að ræða og þýðingarmikið fyrir alþjóð. Mjer finst eðlilegt og sjálfsagt, að nefndir geri upp á milli mála, þegar um önnur eins mál er að ræða. Rjettaröryggið í landinu fer eftir afgreiðslu þessa máls. Og virðing þjóðarinnar inn á við og út á við er misboðið, ef hún ekki reynir að tryggja öryggi hæstarjettar, dómstólsins með úrslitaorði í ágreiningsmálum borgaranna innbyrðis, og ágreiningsmálum borgaranna og erlendra borgara, og í málum, sem snerta æru og líf borgaranna.