01.05.1926
Neðri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í C-deild Alþingistíðinda. (2641)

81. mál, Landsbanki Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) hjelt það vera rangt hjá mjer, að till. hans á þskj. 386 færi fram á gjöf frá innstæðueigendum í sparisjóði Landsbankans til landbúnaðarins, og sagði, að það væri þá, ef um gjöf væri að ræða, að minsta kosti ekki frá sparisjóðsfjáreigendum, heldur frá Landsbankanum. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. (HStef) heyrir mál mitt, enda skiftir það minstu. (Nokkrir þm.: Jú, þm. er nærstaddur). En þessi ummæli hv. þm. (HStef) hljóta að byggjast á því, að hann hefir ekki athugað, hvernig frv. það er, sem hjer liggur fyrir. Hjer er sparisjóðurinn algerlega aðskilinn frá annari starfsemi bankans, hann á að bera kostnað af sínum rekstri að tiltölu, sjálfur að safna sjer varasjóði, og fær engin tillög annarsstaðar að. Sá sem sparisjóðnum er ætlað að fá í vaxtamismun, eftir tillögunni, nægir ekki fyrir reksturskostnaði hans, og því síður, að nokkuð geti orðið afgangs til þess að leggja í varasjóð sparisjóðsins fyrir vanhöldum. Þetta er því beinlínis gjöf frá sparisjóðnum, sem gengur út yfir varasjóð hans, og þá um leið út yfir sparifjáreigendur beinlínis, hvenær sem þannig kreppir að, að varasjóðurinn ekki reynist nógur, aðrar greinir Landsbankans komast alls ekki að til þess að greiða neinn halla af þessu fyrir sparisjóðsinnieigendur. Þá sagði hv. þm. (HStef), að afstaða mín gagnvart till. bæri vott um aðra stefnu og aðrar óskir um vöxt þjóðlífsins. Þetta er allra mesta fjarstæða, jeg hefi, satt að segja, ekki mikið aðrar óskir um vöxt þjóðlífsins heldur en hv. þm. (HStef) sjálfur. En jeg álít, að það beri að fara rjetta leið til að koma fram óskum sínum í þeim efnum, og að það sje ekki sú leið að meiða eða skemma eina tiltekna peningastofnun, sem meðal annars á að bera uppi þann rjetta vöxt. Jeg vildi óska, að hv. flm. vildu leita álits einhverra bankamanna, sem þeir bera traust til, t. d. núverandi stjórnar Landsbankans, sem jeg hygg, að þeir báðir beri fult traust til, um það, hvort brtt. þeirra sje forsvaranleg frá sjónarmiði bankans.

Jeg held, að jeg geti ekki alveg leitt hjá mjer þær almennu umræður, sem fram hafa farið milli hv. nefndarmanna í fjhn. Jeg heyrði hv. frsm. minni hl. (JakM) segja það, að sú aðgreining Landsbankans í algerlega sjálfstæðar deildir, svo sem farið er fram á í stjfrv., sje minna en alveg þýðingarlaus. Jeg verð að segja það, þegar jeg heyri svona ummæli, að þá er ekki lengur verið að ræða málið með rökum, heldur er verið að sækja það með kappi, því að með þessu er þó sneitt hjá þeirri höfuð-mótbáru, sem altaf var borin fram gegn honum, að blanda saman sparijóðsstarfsemi og seðlabankastarfsemi. Það er alveg sneitt hjá henni í frv. stjórnarinnar. Það er aðeins svo, að þær eru báðar fyrst um sinn undir sömu stjórn, því að eins og frv. er, er ekkert frekar því til fyrirstöðu, að skilja sparisjóðinn frá seðlabankanum, þegar þykir ástæða til, heldur en að skilja veðdeildina frá honum, sem þegar hefir verið ákveðið með lögum að gera, og ef þetta er gert, hvað er þá eftir? Það verður eftir seðlabanki, en ekki þó eins lítilfjörlegur og hv. minni hl. hefir stungið upp á, heldur í því formi, sem hann verður að stinga upp á, svo framarlega sem hann meinar það alvarlega að vilja koma hjer upp sjerstökum seðlabanka, því að það er ekki til neins að halda því fram, að það sje mögulegt hjer á landi að gera seðlabanka úr þeirri stofnun, sem ekki má taka við neinu innlánsfje fyrir neina vexti. Hjer verður ekki á næstu árum til innlánsfje í neinn banka, sem eigendur vilja láta liggja þar vaxtalaust, svo að það þýðir ekki neitt að vísa í það, þó að erlendir bankar geti þannig fengið nægilega viðbót við sitt fje, því að hjer fæst ekkert á þann hátt. Það hefir nú við þessar umr. ekki verið sagt neinum ofsögum af því, hve máttlaus sú seðlastofnun yrði, sem hv. minni hl. milliþinganefndar hefir stungið upp á, en þær tillögur liggja ekki hjer fyrir til umræðu, og þessvegna vil jeg leiða hjá mjer að tala um þær, því að þær geta vel komið endurbættar frá hv. minni hl. nefndarinnar til þessarar deildar, og því kannske ekki rjett að veitast að þeim í því formi, sem þær eru nú, en máttleysi þeirrar stofnunar liggur í því, að hún er á engan hátt útbúin til þess að geta varist gengissveiflum. Hv. frsm. minni hl. (JakM) segir, að þótt Landsbankinn verði gerður að seðlabanka, geti hann ekki varist gengissveiflum, og bætir við, að enginn banki geti það. Jeg verð að biðja hv. frsm. (JakM) að athuga það, hvaða skyldur það eru, sem verið er að leggja á herðar seðlabanka, bæði í þessu frv. og frv. hv. minni hl. milliþinganefndar. Það er í fáum orðum eitthvað á þá leið, að koma tryggri skipun á seðlaútgáfuna, og svo nokkur fleiri ummæli, sem samandregin í eina setningu þýða það, að halda genginu föstu, að halda föstu því gildi á peningum landsins, sem er miðað við gull, halda því í gullverði, þegar seðlarnir eru innleysanlegir, og það er að reka þá gengispólitík, sem þjóðin óskar eftir, á þeim tímum, þegar svo illa vill til, að gjaldeyririnn hefir fallið í verði og seðlar eru óinnleysanlegir. Sá vettvangur, þar sem gildi gjaldeyris hvers lands á hverjum tíma verður ákveðið, er altaf einn og sá sami. Sá vettvangur er gjaldeyrisverslunin. Það hefir aldrei verið öðruvísi en svo, að þegar gjaldeyrir einhvers lands hefir fallið úr því gildi, sem hann hefir átt að hafa, þá hefir það komið fram á sviði gjaldeyrisverslunar, þá hækkar gullgildur gjaldeyrir annara landa í verði. Gjaldeyrisverslunin er sá orustuvöllur, sem hver einasti seðlabanki verður að mæta á og berjast, til að halda sínu verkefni fram til sigurs. Það er ekki nóg að lána út seðla innanlands gegn fullri tryggingu, og koma ekki nærri málinu, sem hjer er útkljáð. Þeir, sem halda, að það sje nóg að hafa góða tryggingu fyrir seðlalánum, þeir standa á þeim grundvelli. Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) var að vísa til þess, sem gerðist á þeim tíma, sem John Law var uppi, en það er auðskilið mál, að þótt hann fengi góða tryggingu fyrir öllum sínum seðlalánum, þá gat hann aldrei trygt sjer annað en það, að fá fulla krónutölu inn aftur, því að ef seðlarnir falla í verði, tekst ekki að halda uppi sigursælli baráttu á sviði gengisverslunar, þá eru þær krónur, sem settar eru að tryggingu fyrir seðlunum, fallnar jafnmikið í verði og seðlarnir sjálfir. Bankinn fær sínar krónur, en hann fær fallnar krónur, og sama er að segja, ef farið er að tryggja seðla með fasteign. Það er hægt að fá fulla krónutölu greidda, en trygging fyrir því, að hver króna sje fullgild, fæst ekki með öðru en því, að halda uppi fullu gullgildi á gjaldeyrinum út á við. Nú hefi jeg staðhæft það í 1. umr. um frv. hv. minni hl. milliþinganefndar, að sú stofnun getur ekki haldið uppi gjaldeyrisverslun, og þetta er viðurkent í seinustu ræðu hv. frsm. minni hl. (JakM), þar sem hann segir, að það geti gert alveg sama gagn, að einkabankarnir liggi með gjaldeyrinn, þegar svo ber undir. Jeg vil þá biðja hv. þm. (JakM) að hugsa sjer ástandið, eins og það var september síðastliðinn, og hugsa sjer það snið á bankanum, að hann sje þannig útbúinn, að hann geti ekki haldið uppi gjaldeyrisverslun. Hver segir það, að hinir bankarnir kaupi? Það fór nú svo hjer í september, að annar bankinn hætti að kaupa. (TrÞ: Og hversvegna?) Af því að honum sýndist það hyggilegt fyrir sinn hag. (TrÞ: Nei, það var af því, að stjórnin neitaði honum um styrk). Þetta er ekki rjett hjá hv. þm. Str. (TrÞ). Það er hægt að sýna honum, að Íslandsbanki notaði ekki þann rjett til seðlaláns frá Landsbankanum, sem hann hafði, vildi ekki nota hann, af því að hann vildi ekki kaupa gjaldeyri. Seðlaskuld hans við Landsbankann fór þá niður í hálfa miljón króna, þegar mest var seðlaveltan í landinu, en á ýmsum öðrum tímum, og þar á meðal nú, hefir hann hærri upphæð að láni á þessum viðskiftareikningi sínum við Landsbankann en sem nemur allri þeirri seðlafúlgu, sem Landsbankinn hefir í umferð, og lánið minkaði ekki af því, að það væri neitað um það, heldur af því, að bankinn vildi ekki halda áfram að taka það. En segjum, að báðir bankarnir hefðu tekið það ráð upp að vilja ekki kaupa erlenda gjaldeyrinn, sem bauðst. Þá hefði krónan okkar rokið upp í gullverð, og máttlaus seðlabanki, sem engan gjaldeyri gat keypt, hefði alls ekki getað afstýrt því. (TrÞ: Seðlabankinn neitaði því í haust að gefa út seðla). Þetta er misskilningur hjá hv. þm. Str. (TrÞ), en kemur málinu auk þess ekkert við. En hvernig var nú ástandið þá? Það var ætlast til þess, að það væri úti hjá seðlabönkunum sú seðlafúlga, sem viðskiftaþörfin krefði, segjum, að það hafi verið 8 miljónir, svo streymir að gjaldeyrir, sem þarf að kaupa, og þá fór seðlafúlgan upp í 12–13 miljónir. Það er það sjálfsagðasta atriði um skipun á hverjum seðlabanka, að honum sje þannig fyrir komið, að hann sje fyrst og fremst sú bankastofnun, sem haldi uppi gjaldeyrisverslun.

Jeg veit nú, að í hvaða form, sem seðlabanki yrði settur, hlýtur honum að verða ætlað að hafa gjaldeyrisverslun með höndum. En til þess að vera fær um það, verður hann að geta tekið á móti innstæðufje á hverjum tíma sem það býðst fyrir lága vexti.

En seðlabanka hv. minni hl. er ætlað að hafa gullforða, sem svarar 3/5 af því seðlamagni, sem úti er í hvert skifti. Svo er honum ætlað að hafa seðla, sem hann lánar einkabönkunum, en ekki einstaklingum. Hann stendur þá með bundinn gullforða og kröfur á einkabankana. Jeg get ekki sjeð, að þegar fer að berast að erlendur gjaldeyrir, þá hafi hann neitt handbært fje til þess að kaupa fyrir, því hann á engar íslenskar krónur nema í lánum hjá einkabönkunum. Hann verður þá að leita til einkabankanna og biðja um lán; (JakM: Hann getur gefið út nýja seðla). Það er óforsvaranleg pólitík, að láta seðlaveltuna sveiflast eins mikið og viðskiftaþörfin innan lands krefst, að viðbættum sveiflum á skuldum og innieign erlendis. Það eru ekki leyfilegar meiri sveiflur á seðlaútgáfunni en viðskiftaveltan innanlands þarfnast. Þetta er algild regla um seðlaútgáfu í þeim löndum, sem jeg þekki til. Annars er það undarlegt, að seðlabankinn má ekki taka við innlánsfje fyrir lága vexti, en má þó taka lán hjá einkabönkunum, því jeg get ekki sjeð, að annað geti hann gert, ef hann á að annast gjaldeyrisverslun landsins. Þetta verður hann að gera. (JakM: Nei!) Jeg vildi gjarnan fá að heyra hv. frsm. minni hl. (JakM) gera grein fyrir því, þegar seðlabankinn kemur til umr., hvernig hann hugsar sjer, að sjerstakur seðlabanki ræki sitt aðalverkefni á þeim grundvelli, sem frv. er bygt á. — En það sjá allir, að þetta má ekki ætla seðlabanka að gera, að taka lán hjá einkabönkunum, því að vald hans fer þá út um þúfur, er hann verður skuldunautur hinna bankanna vegna gjaldeyrisverslunar.

Hv. frsm. minni hl. (JakM) hefir gert of mikið úr, hver ráð slík seðlastofnun hefði um hagnýtingu hinna bankanna á útlendu og innlendu fje, en því er svarað af hv. frsm. meiri hl. (MJ), svo jeg þarf ekki að fara frekar út í það, aðeins vil jeg benda á, þessu til stuðnings, að síðast liðið haust kom það fyrir og aftur núna nýlega, að sá bankinn, sem með seðlaútgáfuna fór, gat ekki ráðið við, að einkabanki ráðstafaði fje sínu á þann hátt, er hann vildi vera láta. (TrÞ: Sá, sem fór með seðlaútgáfuna, hindraði það.). Hv. þm. Str. (TrÞ) má gjarnan taka til máls og gera frekari grein fyrir þessu, sem hann skaut fram, en jeg mun þá koma með leiðrjettingu. Annars skýtur það dálítið skökku við, er hv. frsm. minni hl. (JakM) segir, að Landsbankinn sem seðlabanki sje máttlaus til þess að halda uppi gjaldeyrisverslun, en í hinu orðinu heldur hann því þó fram, að alt peningamagn sje þar saman safnað á einum stað. Þetta er alger mótsögn, auk þess að hvorttveggja er í raun og veru öfgar, því sannleikurinn liggur einhversstaðar mitt á milli. Sveiflur í atvinnulífi okkar koma fyrst og fremst fram í innieignum og skuldum erlendis, og þær sveiflur verður seðlabankinn að geta borið, en það getur hann því aðeins, að hann hafi yfir að ráða meira fjármagni hlutfallslega en til er ætlast eftir frv., því að enginn einkabanki tekur upp á sig neinar skyldur framar en honum sjálfum gott þykir, og hagsmunir hans ráða. Jeg held, að það sje ófrávíkjanlegt, að slíkur seðlabanki verði að taka á móti innstæðufje, og þá fyrst og fremst á hlaupareikning, sem hlýtur ávalt að vera fylgifiskur gjaldeyrisverslunar. Þar með er ekki sagt, að jeg þurfi að vera öllu sammála, sem hv. frsm. meiri hl. (MJ) og hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) hafa haldið fram um sparisjóðsstarfsemi seðlabankans. En hitt þykist jeg vita, að á erfiðum tímum mundi það reynast of hættulegur holskurður fjármálalífi þjóðarinnar, ef taka ætti sparisjóðsdeild Landsbankans og skilja hana alt í einu frá honum. Það er svo mikil breyting og mikil truflun á þeirri starfsemi, sem í gangi er, að hana má ekki gera á hættulegum tímum. Sparisjóður Landsbankans verður fyrst um sinn að vera undir sömu stjórn og seðlaútgáfan, en svo álít jeg, að menn verði að setja sjer það framtíðarmark að stefna að, að koma bankamálum vorum í það horf, sem best þykir gefast erlendis. En það er að reka einn ríkisbanka, sem um leið sje seðlabanki, og losa hann með tímanum við sparisjóðsstarfsemi Og þannig stefnir stjfrv., að skapa í framtíðinni sömu tilhögun í peningamálum og tíðkast í hinum löndunum. Allar aðrar tillögur vilja annað skipulag: að ríkið reki sjerstaka seðlastofnun, jafnhliða öflugri einkabankastarfsemi.

Annars gladdi það mig, sem kom fram hjá hv. frsm. minni hl. (JakM), „að ef nýr banki kemur, þá horfir málið alt öðru vísi við“, mjer skildist, að hann mundi meina, að um seðlaútgáfu Landsbankans horfði þá alt öðruvísi við.

En efast nokkur maður um, að að því muni reka, að hjer verði stofnaðir fleiri einkabankar? Mjer dettur ekki í hug að efast um það, að þeir komi, en í mínum augum er það ekki mikið mál, hvort það verður í ár, næsta ár, eða seinna. Nú er það seðlaútgáfan, sem um er að ræða, og hana verður að byggja svo upp, að úr verði hagkvæmt framtíðarskipulag. Alt annað er fásinna, eins og peningamálum vorum er komið. Og jeg hygg, að þetta frv., sem hjer liggur fyrir, sje eina og rjetta lausnin á þessu vandamáli.