05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í C-deild Alþingistíðinda. (2655)

81. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. minni hl. (Jakob Möller):

Þar sem svo er ástatt, að minni hl. fjhn. hefir ekki gefist kostur á að skila nál. um þetta mál, en hefir hins vegar ekki athugað það nánar í einstökum atriðum, vegna þess að hann lagði til við 2. umr., að það gengi ekki fram, verð jeg, sem frsm. minni hl. fjhn. að krefjast þess, að málið verði tekið af dagskrá, svo að jeg geti komið með brtt. við það, þar sem þetta er 3. og síðasta umr. málsins.