07.05.1926
Neðri deild: 73. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í C-deild Alþingistíðinda. (2673)

81. mál, Landsbanki Íslands

Klemens Jónsson:

Við aðra umr. kom hjer fram till. um, að allar opinberar stofnanir og opinberir sjóðir, er hafa handbært fje á sjóðvöxtum, skuli geyma það í Landsbankanum eða útibúum hans, nema öðruvísi sje ákveðið í stofnskrá þeirra. Þessi tillaga var því miður samþykt þá, er nú ný grein, 52. gr. Jeg ætlaði þá að tala um þessa tillögu, en það fórst fyrir, af því jeg gat ekki verið viðstaddur alla umræðuna. En nú hefir aftur verið minst á þetta sjerstaklega atriði, og því vil jeg fara nokkrum orðum að því.

Ástæðurnar til þess, að svo mikið opinbert fje safnaðist saman í Íslandsbanka, að ýmsir þjóðræknir menn fóru að líta óhýru auga til þess, voru alveg sjerstakar, og þar sem jeg sennilega er einn af mjög fáum mönnum, sem er því máli kunnugur, þá þykir mjer hlýða, að skýra það mál með nokkrum orðum. Þegar Landsbankinn var kominn á stofn, setti landshöfðingi það opinbert fje, sem hann hafði ekki þörf á til útgjalda í bráðina, í Landsbankann, gegn mjög lágum vöxtum. Þeir munu hafa verið 1%. Með þessu var Landsbankinn líka styrktur, og undi vel við þetta fyrirkomulag, og hjelst þetta fram yfir aldamót, og jafnvel nokkru eftir að Íslandsbanki var kominn á fót. En þá jukust mjög peningaviðskifti bæði innanlands og einkum við útlönd, svo að þar af leiddi, að póstávísanafjeð jókst að miklum mun, og fór að veita erfitt að fá póstávísanafjeð yfirfært gegnum bankana. Jeg, sem þá var landritari, átti þá fyrst tal um það við stjórn Landsbankans, og spurði, hvort hann vildi geyma ávísanafjeð og yfirfæra það eftir þörfum, en því var eindregið neitað, og það jafnvel þó bankinn þyrfti ekki að svara neinum vöxtum. Þá fór jeg til Íslandsbanka og gerði við hann samning um þetta. Bankinn geymdi fjeð gegn sæmilegri rentu og yfirfærði, þegar krafist var. Altaf fór póstávísanafjeð vaxandi, og varð þetta því með árunum þung kvöð á bankanum, svo hann iðraðist eftir að hafa gert samninginn. En hann stóð áfram og alt til ársbyrjunar 1917, er jeg ljet af embætti. Öll þessi viðskifti fóru vel, en jeg get ekkert munað með vissu, hvort Íslandsbanki líka áskildi þá, að fá peninga annara opinberra sjóða, en það er eðlilegt, að stjórnin gerði það, þar sem bankinn hafði reynst henni svo vel í yfirfærslu póstávísanafjár. — Hvernig sambandið milli stjórnarinnar og bankanna hefir verið síðan 1917, veit jeg ekki. Þau tvö árin, sem jeg þekki til síðan, árin 1922–24, hafði landsstjórnin enga handbæra peninga aflögu til að leggja í bankann.

Þetta eru ástæðurnar til, að Íslandsbanki hafði til geymslu og ávöxtunar mikið opinbert fje og þetta hefir vaxið þeim í augum, sem ekki þektu til, og því var svo ákveðið á Alþingi 1919, að alt opinbert fje skuli eftirleiðis geymast í Landsbankanum, en því ákvæði mun aldrei hafa verið fylgt út í æsar.

Ætti nú að hlýða þessum fyrirmælum, yrði að taka stórfje nú þegar út úr Íslandsbanka, upp að miljón, er mjer sagt. Þetta væri mjög hart aðgöngu fyrir Íslandsbanka. Það á með þessu að straffa bankann fyrir það, að hann brást vel við tilmælum stjórnarinnar og tók á sig þunga kvöð, sem Landsbankinn ekki treysti sjer til. Og sennilega er talsvert mikið af þessu lánsfje frá þessum tímum, er samningur gilti.