08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í C-deild Alþingistíðinda. (2686)
81. mál, Landsbanki Íslands
Jörundur Brynjólfsson:
Það er til lítils að karpa um þetta. Mjer virðist af tveim síðustu ræðum hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), að hann harmi það mjög, að ákveðið verði um opinbera sjóði, að þeir skuli ávaxtast í Landsbankanum. Það var einu sinni uppi sú hreyfing, er taldi, að ekki væri þörf á starfsemi Landsbankans og vænlegast væri að hafa aðeins hlutafjárbanka. Sú tíð er nú liðin. En út af breytingum á frv. við síðustu umr., þá sje jeg ekki, að með því sje svo á rjett annara peningastofnana gengið, að orð sje á gerandi. Er óþarfi af háttv. þm. (JAJ) að gera manni upp meiningar, sem maður hefir aldrei sagt nje dottið í hug, og gera þar með ástæður ríkari til andmæla. Þannig gaf háttv. þm. í skyn, að mjer mundi næst skapi, að menn hefðu ekki heimild til að ávaxta fje sitt annarsstaðar en í Landsbankanum. Aðrar peningastofnanir halda sínum rjettindum, og jeg hefi getið þess áður, að það var ekki meiningin að ganga á þau. Till. hefir heldur ekki verið andmælt á öðrum grundvelli en þeim, að alt mætti vera frjálst, og Íslandsbanki eins og Landsbankinn ætti að hafa ávöxtun sjóða. Jeg hefi ekki gefið tilefni til að draga Íslandsbanka inn í umr., og jeg skal játa það, að hann hefir gert of mikið gagn og á yfir of miklu fje landsmanna að ráða, sem bundið er í atvinnuvegum landsmanna, til þess, að okkur megi á sama standa, hvernig honum farnast. En hinu held jeg hiklaust fram, að næst stendur okkur að hugsa um hagsmuni þjóðbankans.
Skil ekki, er menn eru að gera ráð fyrir því, að Landsbankinn muni gefa lága vexti. Það er óþarft að óttast slíkt, því að stjórn bankans er samkvæmt frv. vel komið fyrir, svo að hagsmunir þessara sjóða ættu að vera vel trygðir.
Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) drap á sjerstakar ástæður til þess, að Thorkillisjóðurinn tapaði fje sínu; danska ríkið varð að færa niður inneignir manna sökum alveg óvejulegs hruns, og er ekki hægt við því að gera, er slíkt ber að höndum. En nærri má geta, að þegar hag landsins er svo komið, að hið opinbera getur ekki staðið við skuldbindingar sínar, þá muni peningastofnunum einstakra manna vera með öllu ókleift að standa skil á þeim fjármunum, er þær hafa fengið til ávöxtunar.
Prívatbankar í nágrannalöndunum hafa líka undanfarin ár átt erfitt uppdráttar, og hjá þeim hafa menn tapað stórfje, en þjóðbankar hafa staðist þessar eldraunir betur, sem eðlilegt er.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrði þetta meir, en vona, að hv. deild lofi þessu að standa óbreyttu.