24.03.1926
Neðri deild: 39. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1466 í C-deild Alþingistíðinda. (2736)

79. mál, ríkisbankar Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg ætlast ekki til, að þessi nýstofnaði banki greiddi gengistap, af viðskiftum umliðins tíma, en jeg benti á, að ekki mætti til frambúðar aðskilja arðinn af seðlaútgáfunni og tap vegna gengisbreytinga. Málinu verður að stýra í þá höfn, að þetta tvent lendi hjá sömu stofnun.