03.03.1926
Neðri deild: 19. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (2741)

41. mál, leiga á skipi til strandferða

Frsm. (Sveinn Ólafsson):

Það hafa verið ákveðnar tvær umr. um till. þessa hjer í hv. deild, svo jeg geri ráð fyrir, að hún verði það vel og rækilega athuguð, að jeg þurfi ekki að leggja sjerstaklega mikið í framsögu mína nú að þessu sinni. Reyndar tel jeg ekki, að hjer sje um neitt stórmæli að ræða, ekki öllu meira en að leggja litla bót á gamalt fat og götótt.

Með till. þessari er stefnt að því að fá nokkru haganlegri og örari strandferðir þegar á næsta hausti en ella er kostur á. Um mikilvæga tilraun er ekki að ræða, en aðeins litla bót á strjálum og óhagstæðum strandferðum undanfarandi ára. Sjálf er ályktunin í heimildarformi og stjórninni eftir því leyfilegt, en ekki skylt, að taka skip á leigu, en jeg vil jafnframt taka það fram fyrir hönd samgöngumálanefndar, að hún ætlast til, að ríkisstjórnin noti heimildina svo fljótt sem kostur er.

Það er öllum kunnugt, að undanfarið, og yfirleitt alt frá því fyrir stríð, hafa strandferðir verið strjálar og slitróttar, sjerstaklega þó á stríðsárunum, enda tók þá fyrir siglingar til landsins um stund. Að vísu hefir verið úr þessu bætt núna síðustu árin, en þó er framförin það smá, að ekki verður hægt að bera saman strandferðir síðari ára við þær, sem landsmenn áttu við að búa fyrir stríð eða á tímabilinu frá 1905–1912. Á þeim árum voru aldrei færri en tvö skip í strandferðum og stundum jafnvel þrjú, auk millilandaskipa þeirra, sem „Sameinaða fjelagið“ og „Thorefjelagið“ höfðu þá í millilandaferðum, og áttu leið um flestar nýtilegar hafnir í landinu. Á þessum árum, frá 1905–1912, voru á ferðaáætlun strandferðaskipanna um 70–75 hafnir, sem komið var á í hverri ferð á sumrin á 14 daga fresti, en vetrarferðir fjellu niður, alveg eins og nú á sjer stað. Þessa tilhögun mátti því aðeins hafa, að strandferðaskipin voru tvö og hvort fór hálfhring um landið með ströndum fram.

Á stríðsárunum lögðust strandferðir að mestu niður, og var þá reynt á afmörkuðum svæðum að notast við lítilfjörlega flóabáta, sem bæði reyndust dýrir og óvissir í ferðum og komu því að litlu liði. Fór þessu svo fram til 1917, að „Sterling“ var keypt og hóf strandferðir að nýju. En ferðir þær reyndust ófullnægjandi, enda var skipið látið fara milli landa ýmist, og þótti þar að auki óhentugt til strandferða.

Með komu „Esju“ hingað 1923 er því fyrst veruleg bót ráðin á samgönguleysi með ströndum fram, og að nokkru líkt eftir strandferðum þeim, er tíðkast höfðu fyrir stríð. En þó að „Esja“ sje að mörgu leyti hentugt skip til slíkra ferða, þá hefir reyndin orðið sú, að strandferðir eru nú mun lakari en fyrir stríð, enda ofætlun einu skipi að annast allar strandferðir, vegna póstflutninga, farþega og farms. Viðkomuhafnir hafa undanfarið verið á „Esju“-áætlun um 50, á móts við 70–75, sem voru á áætlun gömlu strandferðabátanna. Auk þess eru nú í hverri ferð feldar niður ýmsar smáhafnir, svo að viðkomur í hringferð verða oftast á 17–25 höfnum, og ofan í kaupið strjálli ferðir.

Það er því óneitanlegt, að á þessu sviði hefir hjer í landi verið afturför, en ekki framför, síðari árin. Strandferðir og samgöngur milli afskektra hjeraða hafa rjenað, og hefir þetta komið harðast niður á þeim, sem erfiðast eiga um aðrar samgöngur og afskektastir búa.

Fyrir samgmn. hefir nú legið álit milliþinganefndar þeirrar, er skipuð var eftir þál. 13. maí s. l., og má af greinargerð till. sjá, hvernig milliþinganefndin hyggur tiltækilegast að bæta strandferðir. Samgmn. viðurkennir að vísu, að mjög æskilegt væri að geta haft tvö skip til strandferða, og þá helst annað að stærð og útbúnaði líkt og önnur till. milliþingan. ræðir um, þ. e. a. s. lítið vöruflutningaskip með nokkru farþegarúmi, sem farið gæti á hinar vangæfari og tafsamari hafnir, jafnframt og það annaðist vöruflutninga og umhleðsluvarning. En samgmn. hefir þó ekki að svo stöddu sjeð sjer fært að flytja tillögu um kaup á slíku skipi nú þegar, en horfið að því að flytja 5. till. milliþingan., um leigu á 500 smálesta skipi til strandferða á næsta hausti. Ef það verður framkvæmt, er með því stigið fyrsta hænufetið og komið nokkru nær takmarkinu en ella, og nokkur von til, að aðalpóstskipið, „Esja“, geti þá jafnframt hraðað meir flutningi pósts og farþega.

Það má vera, að einhverjum virðist of mikið í sölur lagt fyrir þessar auknu strandferðir, ef kostnaður við leiguskipið verður svo sem milliþingan. ætlar, 45 þús. kr. En reyndar er sú upphæð smáræði eitt, þegar þess er gætt, að um það 9/10 allra landsmanna komast í nánara samband hver við annan og hafa meiri eða minni, bein eða óbein not af ferðunum, enda hverfur slík upphæð fljótt, ef hana á að nota í vegabætur og samgöngur á landi. Landshættir allir og bygðir með ströndum fram einskorða gersamlega hjá oss samgöngur og samgöngutæki á sjónum um langan tíma, og jeg hygg, að vort strjálbygða land eigi meira undir góðum strandferðum en alment er álitið.

Mjer kemur í þessu sambandi í hug gömul sögn frá 1874 um samtal milli þáverandi landlæknis, Hjaltalíns, og eins af ensku gestunum, sem hingað kom. Hún getur verið tilbúningur, en hún er þá skuggsjármynd af hugmyndum höfundarins. Hjaltalín spurði Englendinginn, sem var stjórnmálamaður, að því, hvað hann áliti að við ættum fyrst og fremst að leggja fje til, þegar fjárstjórn og lagasetning væri fengin til handa þjóðinni með stjórnarskránni nýju. Englendingurinn svaraði: Að efla samgöngur og leggja vegi. Hjaltalín spurði þá, hvað hann teldi vera annað atriðið í röð framkvæmdanna. Englendingurinn svaraði aftur: Að efla samgöngur og vegagerð. Þá vildi Hjaltalín vita, hvað Englendingurinn teldi þriðja framkvæmdaratriðið, og Englendingurinn svaraði enn sem fyr: Að efla samgöngur og vegagerð.

Jeg held, að í þessari sögu felist skýr og rjettur skilningur á þörfum og högum þjóðar vorrar. Jeg held, að þeir, sem sárast kvarta um burtstreymi fólksins úr sveitunum, gæti þess ekki ætíð, að einangrun hjá þeim, sem utan við samgöngur eru eða lítil not hafa samgangna, knýr fólkið fremur flestu eða jafnvel öllu öðru til að leita á brott. Um þetta gæti jeg bent á mörg áþreifanleg dæmi, ef tími væri til.

Það er alls ekki óbjörgulegra eða miður arðvænlegt að stunda sjó eða landbúnað í sumum afskektu sjávarsveitunum eystra heldur en t. d. á Norðfirði eða Seyðisfirði, og hvorki liggja þessir fjölmennari staðir betur við fiskimiðum nje hafa meiri landkosti að bjóða en hinir, en þeir njóta betur samgangna og öðlast við það óviðjafnanleg aðstöðuþægindi.

Eitthvert álitlegasta hjerað austanlands virðist mjer vera Hornafjörður, hvort heldur sem litið er til landkosta eða sjávargagns, en þar dvelja aðeins fáar sálir, álíka margir í allri sýslunni, frá Lónsheiði að Skeiðarársandi, eins og í Nesþorpinu einu á Norðfirði. Hvað mundi því valda annað en samgönguleysið, einangrunin? Líkt er þessu farið um marga aðra staði, og þetta hefir aldrei eins ljóslega sýnt sig og á síðustu 12 árum, sem strandferðir hafa verið lakastar, að fólkið dregur sig saman á þá staði, sem greiðastar eru samgöngurnar, og varpar þannig af sjer fásinni einangrunarinnar. Það er ekkert vafamál fyrir mjer, að eitt þarfasta verkið, sem vjer getum unnið nú, er að tengja sem traustast saman með tíðum strandferðum allar sveitir landsins, sem strandferðir geta náð til, og koma á tíðum póstgöngum upp um sveitir, frá höfnum, sem uppland hafa að baki.

Jeg veit, að margir þeirra manna, sem í fjölmenni búa og við sæmilegar samgöngur, gera sjer eigi fyllilega ljósa þörf þeirra í þessu efni, sem við einangrunina búa. Það á við hjer, sem svo oft ella, gamla máltækið: sá veit gerst, sem reynir.

Með þessari tillögu er engin framtíðarskipun gerð um strandferðir, aðeins lítil aukning þeirra á þessu ári. En ef hún verður framkvæmd, fæst gagnleg reynsla um það, hvernig slíkar ferðir bera sig og að hve miklu gagni þær koma, einnig um fyrirkomulag þeirra.

Mjer þykir rjett að geta þess að lokum, að sá maður, sem hefir best skilyrði til að meta þessa hluti, Nielsen framkvæmdarstjóri, álítur, og hefir leyft að hafa eftir sjer, að hann teldi nauðsyn að því að fá, að lokinni þessari tilraun, nýtt skip, hæfilega stórt, með „Esju“, til að halda uppi ferðum milli tafsamari og vangæfari hafna, skip, sem fremur annaðist vöruflutning en farþega. Fyrir mjer vakir það, að næsta skrefið eigi að vera að útvega slíkt skip.

Eins og jeg sagði áðan, þá er þetta fyrsta hænufetið, að leigja skip til haustferðanna næsta haust. Stærra fótmál er eftir, og það á eftir minni skoðun að stíga næsta ár, sem sje: að útvega nýtt og hentugt skip til fastra ferða með „Esju“.