03.03.1926
Neðri deild: 19. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (2744)

41. mál, leiga á skipi til strandferða

Atvinnumálaráðherra (MG):

Háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) hjelt að það mætti láta leiguskipið fara inn á Hornafjörð í haust, og mjer skildist, að hann bygði það á því, að í nál. segir, að draga megi úr kostnaði við Hornafjarðarbátinn. En þetta er misskilningur. Nielsen framkvæmdarstjóri segir, að það sje ekki hægt að fá skip, þó ekki sje stærra en þetta, vátrygt til Hornafjarðar að haustinu til, nema gegn svo háu aukagjaldi, að það muni ekki borga sig. Það er því ekki rjett, sem segir í nál., að það muni vera hægt að spara fje til Hornafjarðarbátsins. Það er ekki hægt.

Hv. þm. (SvÓ) sagði, að fyrir stríðið hefðu skip Sameinaða fjelagsins meira haldið uppi strandferðum en nú. Því ber ekki að neita. En þess er að gæta, að þær ferðir voru aldrei hentugar fyrir hinar smærri hafnir. Skipin komu við á stóra höfnunum, en vora oft ófáanleg til þess að koma við á smáhöfnunum. Í þessu efni er stjórn Eimskipafjelagsins miklu liprari. Stjórn Thorefjelagsins var líka betri en Sameinaða fjelagið, en þó er víst, að það hefir aldrei gert betur nje eins vel og „Goðafoss“ gerir nú, a. m. k. að því er snertir Norðurland.