06.03.1926
Efri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (2781)
18. mál, sæsímasambandið við útlönd o.fl.
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg finn ekki ástæðu til að segja eiginlega neitt um þessa þingsályktunartillögu í þetta skifti. Hún hefir gengið gegnum hv. Nd. án þess að sæta nokkrum mótmælum, og mjer leiðist að vera að endurtaka það, sem jeg hefi sagt í Nd., bæði af því, að hv. þdm. munu þessir samningar kunnir, og sjerstaklega eftir að brjef það er komið frá landssímastjóra, sem prentað er sem fylgirit við nál. samgmn. Nd. Jeg vil því leyfa mjer að mælast til, að till. verði, að þessari umr. lokinni, vísað til síðari umr. og til samgmn. þessarar hv. deildar.