04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (2799)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Pjetur Ottesen:
Jeg verð að segja, að það kom dálítið flatt upp á mig í gær, þegar settur var sjerstakur fundur hjer í deildinni til þess að taka fyrir mál, sem útbýtt var á sama fundi. Jeg hefi athugað þetta dálítið síðan, og við þá athugun hefir komið í ljós, að mjer virðist ábyrgð þessi vera til orðin án lagaheimildar. Jeg hefi leitað í Stjórnartíðindunum og enga heimild fundið, nema fyrir árið 1922, en jeg lít svo á, að sama gildi um slíkar ábyrgðarheimildir eins og fjárframlög og lánsheimildir, að þær nái aðeins yfir sama tíma og fjárlögin.
Þessi ábyrgð hefir því enga stoð í heimildum frá Alþingi. Hún mun þó bygð á heimild frá 1922, og á því ári voru slíkar ábyrgðir veittar þremur skipum, en öllum gegn góðum tryggingum.
Þegar athugaðar eru umr. um þetta mál 1921, og sjerstaklega ummæli frsm. (JakM), kemur skýrt í ljós, að gengið hefir verið út frá því sem sjálfsögðum hlut, að stjórnin yrði mjög eftirgangssöm um tryggingar. Jeg ætla með leyfi hæstv. forseta að lesa upp nokkur orð út framsöguræðu frsm. Hann segir:
„Auðvitað ætlast nefndin til þess, að skipaeigendur setji ríkissjóði allar þær tryggingar, sem þeir hafa ráð á, svo sem persónulegar ábyrgðir og veðtryggingar, auk veðsins í skipunum, alt því til tryggingar, að ríkið bíði ekki tjón af ábyrgðinni — “ o. s. frv.
Þetta óhapp, sem hjer hefir hent ríkissjóð, virðist stafa af tvennu. Það er gengið þarna í ábyrgð, án þess að heimild liggi fyrir, og í öðru lagi er þess ekki gætt að fá nógu góða tryggingu. Það er kunnugt, að þó þetta fjelag, sem hjer ræðir um, sje illa statt, þá standa að því ýmsir vel efnaðir menn, sem vel gátu veitt persónulegar tryggingar, svo að ríkissjóður hefði engu þurft að tapa.
Jeg geri ráð fyrir, að ekki þýði að sakast um orðinn hlut og ríkið verði að taka við skellinum, ef ekki rætist úr fyrir fjelaginu. En þetta er góð og athugaverð bending fyrir þær landsstjórnir, sem fara með völdin framvegis, um að fara ekki út fyrir lagaheimildir, þegar líkt stendur á, og gæta þess, að búa vel um hnútana, sjerstaklega þegar áhættusöm fyrirtæki eiga í hlut. Jeg get ekki með öllu tekið undir það, sem hv. 2. þm. Rang. (KlJ) sagði, að vítalaust væri, hvernig máli þessu hefir undið fram.