04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2801)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Fjármálaráðherra (JÞ):
Viðvíkjandi hugleiðingum hv. þm. Str. (TrÞ) vildi jeg aðeins segja það, að þær mundu hafa orðið heldur meira virði til upplýsingar því máli, sem hjer liggur fyrir, ef hann hefði verið ögn betur kunnugur hag þessa útgerðarfjelags og tildrögunum til þess, að svona er komið fyrir því. Hann lýsti sjálfur yfir því, að hann væri þessu ókunnugur, svo ekki var von, að ræða hans gæfi miklar upplýsingar. Það þarf ekki lengi að rekja aðdragandann að því, að svona er komið fyrir fjelaginu. Það nægir að minna á það, sem tekið var margoft fram á síðasta þingi, að þó árið 1924 hefði verið góðæri fyrir útgerðina, þá gátu þessi fyrirtæki ekki notið þess, sökum þess, að allur hagnaðurinn fór til þess að greiða gamlar skuldir. En þó hagur þessa fjel. sje nú að ýmsu leyti örðugur, þá er hann samt töluvert betri nú en við árslok 1923. Það mundi ýmislegt horfa öðruvísi við, ef hægt hefði verið að fá ýmsa hv. þm. og þar á meðal hv. þm. Str. (TrÞ) til þess að skilja þetta á síðasta þingi. Hefðu menn þá alment skilið ástandið eftir hina örðugu tíma, þá mundi nú standa betur á fyrir ýmsum þessum fyrirtækjum en nú er raun á. En hinsvegar tel jeg ekki ástæðu til þess að örvænta, þó hagur þessa atvinnuvegar hafi hallast um stund. Hitt er rjett og sjálfsagt fyrir Alþingi, að taka fult tillit til ástandsins, eins og það er, og gera þær ráðstafanir í því sambandi, sem við eiga. Og meðal slíkra ráðstafana tel jeg þessa till., sem hjer liggur fyrir, og er í raun og veru alveg útgjaldalaus fyrir ríkið, eins og nú er komið þessu máli.