04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (2803)

53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum

Frsm. (Björn Líndal):

Jeg vil taka það fram, að þó að sjútvn. á þingi 1922 hafi rætt þetta mál og gert um það till., þá breytir það í raun og veru engu gagnvart því, sem jeg hefi haldið fram. Það er aðalatriði málsins að fá það upplýst, að hve miklu leyti hægt er að nota slíka heimild sem þá, er hjer ræðir um, eftir að fjárhagstímabilið er liðið. Það stendur nú í fjárlögunum, að þau gildi aðeins fyrir það ár, sem þau eru gerð fyrir. En það er rjett hjá hv. 2. þm. Rang. (KlJ), að óhjákvæmilegt er, að þau gildi nokkuð lengur, eitthvað fram yfir áramót, a. m. k. hvað snertir útborganir á ákveðnum fjárveitingum. En það er nokkuð öðru máli að gegna um ábyrgðarheimild eins og þessa, og það því fremur sem hún kemur ekki í framkvæmd fyr en svona seint — í september 1923. Jeg er ekki með þessu að áfellast hv. 2 þm. Rang. (KlJ), en jeg vil fá það skýrt fram, hvort þetta eigi að skoðast gilt fordæmi eða ekki. Jeg er fyrir mitt leyti alveg eindregið á móti því, að slíkt verði eftirleiðis talið leyfilegt, og vil, að þingið mótmæli slíku í framtíðinni.

Hvað trygginguna snertir, þá get jeg ekki með mínum besta vilja sjeð, að heimildin hafi náð til nema 200 þús. kr. á hvern togara, á eftir 7000 sterl. pd. En hjer er gert ráð fyrir, að 20000 sterl.pund hvíli á þeim báðum, og er þó alkunnugt, að þetta eru einhverjir allra ljelegustu togararnir í öllum flotanum. Nú er það upplýst, að skipin hafi verið keypt fyrir hálfa miljón kr. upp og ofan, en allir viðurkenna, að skip hafi lækkað mjög mikið í verði síðan, og þegar ábyrgðin er undirrituð, stóð sterl.pundið ekki langt frá 30 kr. Hvíla þá ca. 600 þús. kr. á skipunum. Þetta virðist mjer nokkuð mikið. En nú er komið sem komið er, og verður ekki aftur tekið. En mjer virðist rjett, að í tilefni af þessu máli lýsi þingið því ákveðið og eindregið yfir, að það krefjist þess af hverri stjórn, að hún gæti nákvæmlega fyrirmæla þingsins um alt, er að fjármálum lýtur, og fari þar aldrei lengra en hún hefir fulla og ótvíræða heimild til.