04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í D-deild Alþingistíðinda. (2806)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg vil aðeins taka það fram, út af þeim orðum, sem hjer hafa fallið um það, hvort fjárlög gildi aðeins eitt ár eða eitthvað lengur, að jeg tel engan vafa á því, að fjárveitingar þeirra gildi aðeins eitt ákveðið ár, sem þau eru gefin út fyrir. Og það er í sjálfu sjer holl og góð regla að halda fast við það. En þó er jeg engan veginn viss um, að það sama gildi um slíkar ábyrgðarheimildir sem þessa, er í fjárlögum standa, því fjárlögin sjálf ákveða aðeins um fjárveitingar, að þær gildi aðeins fyrir þetta eina ár. Það mætti því ef til vill líta svo á, að ábyrgðarheimild þessi væri ekki svo einskorðuð við vissan tíma. Sem sagt, jeg tel það hollan skilning á ákvæðum fjárlaganna, að þau sjeu ekki bindandi nema fyrir það ár, er þau gilda. Hinsvegar verður hver stjórn að standa við þau loforð, sem hún hefir sjálf gefið, eða sú stjórn, sem hún hefir tekið við af, og eins þótt þau skjöl, sem málið snerta, sjeu ekki tilbúin til undirskriftar fyr en eftir að fjárhagstímabilið er útrunnið. Það verður að skilja þetta svo, að ábyrgðin hafi verið veitt um leið og stjórnin gaf loforð um, að hún skyldi verða veitt. Þetta segi jeg ekki af því, að jeg sje á móti því, að haldið verði við strangasta skilning á ákvæðum fjárlaganna. Jeg hefi líka yfirleitt mælt á móti því að setja slíkar ábyrgðarheimildir í fjárlög. En hvað sem því líður, þá er það víst, að þessi ábyrgð er gild og bindandi fyrir ríkissjóð, eins og nú er komið.