04.03.1926
Neðri deild: 22. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (2815)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Fjármálaráðherra (JÞ):
Það hefir verið gerð grein fyrir því í áliti stjórnarinnar og nefndarinnar, að ef fjelagið verður að stöðvast nú og veðhafar ganga að veðum sínum, og þar á meðal ríkissjóður, þá muni veðskuldin vera að öllu leyti töpuð. En hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ) spurði: Skiftir það bankann nokkru máli að fá þennan veðrjett? Það getur vel gert það, ef bankinn þá lætur fjelagið hafa rekstrarlán til þess starfa yfir vertíðina. Og verði hagnaður af því, þannig að fjelagið geti skilað meiru en sjálfu rekstrarfjenu, þá er það raunverulega svo, að bankinn tryggir sjer þennan afgang með því að fá veðrjettinn. Hann tryggir sjer það, sem hann álítur að græðast muni fyrst um sinn á því að halda fjel. við. Þetta gæti ríkissjóður útvegað sjer, ef hann vildi leggja fjelaginu til rekstrarfje. En fram á það hefir enginn farið, og fáir myndu mæla með því.
Því er þess vegna ekki svo varið, að við sjeum að gefa bankanum eftir neitt það, sem ríkissjóður á að fá.