27.03.1926
Efri deild: 39. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (2836)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Gunnar Ólafsson:
Það er ekki mikið, sem jeg þarf að segja um þetta mál. Það voru aðallega fáein orð í ræðu hv. frsm. minni hl. (IP), sem jeg vildi athuga lítilsháttar. Jeg þykist vita það, að hv. þm. (IP) vilji það besta í þessu máli. En það kom þó ljóslega fram í ræðu hans og öllum afskiftum af málinu, að honum hefir hjer allmjög missýnst. Hann veit vel, að veðið var einskis virði og er einskis virði. Hann veit ennfremur, að ef fjelagið hættir nú, þá er öll von úti um, að það verði nokkurntíma nokkurs virði, en haldi fjelagið hinsvegar áfram, þá er alls ekki vonlaust um, að því gangi nú betur heldur en á síðasta ári. T. d. bendir útkoman af rekstri þess 1924 á það, að það sje alls ekki dauðadæmt, þótt eitthvað hafi borið út af í svip. Þá hlýtur þessi hv. þm. (IP) að vita, að hlutafje var safnað í fjelag þetta, sem mun hafa numið um 600 þús. kr., og það fje veit hann að hlýtur nú að vera tapað. Og sömuleiðis veðrjettur ríkissjóðs. Alt þetta er tapað til fulls, ef fjelagið hættir. En þrátt fyrir það gerir þessi hv. þm. (IP) alt sem hann getur til þess að stöðva fjelagið og þar með svifta hluthafa voninni, síðustu voninni um að bjarga fje sínu, og um leið til að losna úr þeim ábyrgðum, sem á þeim hvíla. Þegar þessa alls er gætt, þá verður manni að segja, að hann sje a. m. k. misvitur, hv. þm. (IP). Nú veit hann einnig, að hans eigin kjósendur, sem hann vildi jafnvel deyja fyrir, hafa lagt mikið fje í þetta fjelag. Og ef fjelagið hættir nú, þá verða þessir hv. kjósendur að tapa öllu sínu, sem þeir hafa lagt í fjelagið. Jeg held nú, að þótt kjósendur virði mikils hv. þm., muni þeir frekar gjalda honum óþökk fyrir þessa vanhyggju, því eins og eðlilegt er, þá þykir þeim sárt að tapa fjenu. Raunar býst jeg við því, að þeir sjái, að fjeð sje nú tapað eins og stendur, en hætti fjelagið, þá tapa þeir líka voninni, eins og áður er sagt.
Það hefir nú verið talað svo margt um þetta mál, og hæstv. fjrh. færði svo sterk rök fyrir því, hvers vegna hann legði til að gefa veðrjettinn eftir, að það verður ekki betur gert, a. m. k. ekki af mjer, og skal jeg því ekki fara út í það. Aðaltilgangur minn með þessum orðum var sá, að benda hv. þm. (IP) á það, hve hrapallega villur hann fari vegarins í þessu máli, — vitanlega þá með það fyrir augum, úr því atkvgr. hefir enn ekki farið fram, að hann sjái að sjer og greiði nú atkv. á móti dagskrá sinni.
Jeg skal ekki fara langt út í ræðu hv. 3. landsk. (JJ). Sú ræða var löng, eins og þeim hv. þm. er lagið, og benti mest á það, að hjer væri kominn ljóslifandi hv. fyrv. 5. landsk., sem jeg ætla að sje nokkuð þektur hjer í þessari hv. deild. Mjer fanst ræða hans ekki eiga hjer við, heldur væri hún frekar eldhúsdagsræðu, þar sem matreiða ætti eða sjóða upp það, sem hv. Nd. var að bjástra við í gær. Hv. þm. (JJ) sagði, að fjelagið hefði verið komið að því að drepast 1923. Þetta er alveg rjett. En þá hljóp stjórnin undir bagga, og vil jeg ekki ámæla henni fyrir það. Það var gert í því skyni að hjálpa fjelaginu til þess að halda áfram. En fjárhagslega skoðað frá hálfu ríkissjóðs var það þó ekki rjett, því veðið, sem stjórnin tók, var einskis virði. Og af því stafar alt þetta. En annars hefði fjelagið fallið, sem jeg tel að hefði verið illa ráðið, en þá hefði ríkið að vísu engu tapað. Jeg held nú, að þegar á alt er litið, þá sje jafnvel enginn raunverulegur skaði skeður, þegar þess er gætt, hve miklar tekjur ríkissjóður hefir haft af þessu fyrirtæki síðustu, 2 árin. Fjelagið hefir borgað mikið fje í ríkissjóð og hefir veitt mikla atvinnu, sem mörgum hefir komið að góðu haldi.
Eitt atriðið í ræðu hv. 3. landsk. var það, að fjrh. hefði svikist um það að innheimta skatta hjá fjelaginu. Það er leitt, ef hv. þm. (JJ) veit ekki það, að stjórnin heimtar ekki inn þessa skatta, og jeg geri ráð fyrir því, að stjórnin sje ekki látin vita, hvað líður innheimtu fyr en komið er að árslokum eða öllu heldur fram yfir árslok. Lögreglustjóri mun eiga von á því, að gjaldendur komi og greiði skuldir sínar alt fram að árslokum og lengur. Og sje hjer nokkurn að saka, þá er það lögreglustjóra eða sýslumann þann, er gjaldið átti að heimta. En jeg saka hann ekki heldur.
Þetta, að fjrh. (JÞ) hafi gefið eftir af veðrjetti ríkissjóðs og þannig stutt að því, að fjelagið gæti haldið áfram að starfa frá nýári til vertíðar, það held jeg, að hafi verið rjett ráðið. Það var gert í þeim tilgangi, að fjelaginu gæfist kostur á að freista gæfunnar á næstu vertíð. Ef það hefði enga hjálp fengið eftir nýár, þá hefði það orðið að gefa sig upp, og þá um leið verið svift þeim möguleika að reyna gæfuna á vetrarvertíðinni. Hitt er líka vitanlegt, að það er ekki rjett, sem hv. 3. landsk. sagði, að stjórnin hefði leynt þessari eftirgjöf, því það sanna er, að þetta er tekið fram í skjölum, sem legið hafa fyrir nefndinni. Hafi nefndin ekki lesið þau skjöl nógu rækilega, þá er það hennar eigin sök, en ekki stjórnarinnar.
Jeg hjet því að vera ekki langorður, enda er mál þetta orðið svo upplýst sem það getur orðið, og afstaða hv. þdm. mun ekki breytast úr þessu að neinu leyti, hvað sem hjer kann að verða sagt.