29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (2846)
53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum
Jónas Jónsson:
Það hlýtur að vera gleðilegt fyrir hæstv. stjórn að fá þarna eitt nýtt stuðningsatkvæði, ef önnur falla frá henni, og það í einhverju allra aumasta máli, sem fyrir þingið hefir komið. Hæstv. fjrh. byrjaði á því síðast að gera útúrdúr um fundi okkar úti um land, þar sem við leiddum saman hesta okkar. Á hvorugum fundinum, á Sveinsstöðum eða í Borgarnesi, leit út fyrir, að hann færi burt með neitt sigurbros á vör. Eftir 14 tíma umræður á Sveinsstaðafundinum voru Framsóknarmenn eftir á vígvellinum, syngjandi ættjarðarsöngva, þegar hann laumaðist burtu með sinn eina stuðningsmann (hv. þm. V.-Húnv.). Í Borgarnesi var það áberandi, að aðeins 4 menn klöppuðu fyrir honum, enda játaði hann, að æskan hefði verið sjer mótsnúin, en það er of lítið sagt, því að meiri hluti fundarmanna var með Framsókn, en móti honum. — Jeg vildi aðeins leiðrjetta þetta. Hvað skjalið snertir, er það játað, að það er engin sönnun um það, hvaðan uppástungan er komin. Það er krotað á það með blýanti með annari hendi, og gæti vel verið skrifað af einhverjum hjer í þinginu. —
Hæstv. fjrh. kemst og í mótsögn við skjalið, þar sem hann neitar að hafa gengið í nokkra ábyrgð á tapi gagnvart landssjóði.
Það er ámælisvert, að fjelagið gerir út á versta tíma, þegar búast má við tekjuhalla. Hvers vegna þurfti endilega að halda skipunum úti í haust, þegar aðrir, sem betur stóð á fyrir, ljetu skip sín liggja? Það er rjett hjá hv. 1. landsk., að jeg álít, að hæstv. fjrh. beri ábyrgðina, ef tap verður á rekstrinum. — Það er líka ámælisvert, að fjelagið borgaði aðrar skuldir, en ekki ríkissjóði. Það er rjett til getið hjá hv. 1. landsk., að hjer er um það að ræða að ljetta af hæstv. fjrh. skuld, sem hann er í. Það er og vítavert hjá hæstv. fjrh., að hann krafði fjelagið ekki um þessa skuld, þegar hann hafði aðstöðu til þess. Þegar fjelagið komst í greiðsluvandræði í haust, fjekk hann rjett til að blanda sjer í málefni þess. Í árslok 1924 hafði fjelagið grætt hálfa miljón, og hefði þá mátt ganga að fjelaginu, ef það borgaði ekki, en það greiddi ekki einu sinni skatta til ríkissjóðs. En Íslandsb. fjekk alt sitt, og var þar ver gengið eftir hjá hæstv. fjrh. en hjá háttv. 1. landsk., sem náði inn. fyrir bankann.
Þá hjelt hæstv. fjrh. því fram, að veðið hefði verið bætt, með þeim 200 þús. kr., sem varið var til viðgerðar á skipum fjelagsins, þetta veð, sem búið er að afhenda og þingið á nú að afhenda í annað sinn. Það hefir komið ljóst fram, að veðið hefir þegar verið afhent, og það fyrir 3 mánuðum. Aðalatriðið í þessu máli er það, að hæstv. fjrh. hafði enga heimild til þess, og svo sú tregða, sem hann hefir sýnt til að leggja málið ljóst fyrir þingið, er vítaverð. Jeg vil skjóta því til hæstv. ráðherra, að sá, sem hefir afhent veðrjett í leyfisleysi, hann getur tekið upp á fleiru.
Þá skáldaði hæstv. ráðh. heila sögu um andstöðu mína gegn útgerðinni, sem átti að hafa gerst, þegar fyrsti togarinn kom hingað. En nú stóð svo á, að þá var jeg erlendis, svo hjer er um að ræða sögulega villu hjá hæstv. ráðh. (Fjrh. JÞ: Háttv. þm. var þá nýkominn heim og fyrsti togarinn líka). Það er gott, að hæstv. ráðh. reynir að skinna upp söguna. Annars vildi jeg, þó að þetta sje rakalaus Gróusaga, skora á hann að nefna sögumanninn, og gætum við þá talast við um þetta síðar í öðru sambandi.
Hann sagði, að stórútgerðin hefði haldið uppi hag ríkissjóðs á undanförnum árum, og þar með þá auðvitað h. f. „Kári“. Nú veit hæstv. fjrh. þó, að stórútgerðin borgaði enga skatta að kalla á mögru árunum. Þá greiddu útgerðarfjelögin hjer í Reykjavík í tekjuskatt 40 þús. kr. annað árið og 30 þús. kr. hitt árið, og það var almenningur, sem með neyslu- og nefsköttum varð þá að sjá ríkinu fyrir sínum fullu tekjum. Og þegar svo góðærið kom, þá veit hæstv. fjrh. best, hvernig reynt var að koma stórútgerðinni undan því að greiða tekjuskatt sinn. Það var hæstv. fjrh. (JÞ) sjálfur, sem var hindraður á síðustu stundu, þegar hann ætlaði að fara að skríða inn um efsta stigagatið, er hann var að reyna að bjarga ríkissjóði frá þessum peningum. Með öðrum orðum, hæstv. fjrh. (JÞ) veit, að þetta er alt ósannindi, sem hann sagði um stórútgerðina. Hann veit, að þjóðin hefir lifað í þúsund ár í þessu landi án stórútgerðar, og á þeim tíma hefir hún skapað alt það besta og verðmætasta, sem hún hefir að hrósa sjer af sem þjóð. En síðan stórútgerðin kom hefir hvert „krakkið“ rekið annað, til stórtjóns fyrir land og lýð. Fyrst var það miljónafjelagið; og nú er hæstv. fjrh. að reyna að koma þessu síðasta „krakki“ á ríkissjóð. Það lítur út fyrir, að fyrir honum vaki hreint og beint að þjóðnýta gjaldþrotin. Fyrst slakar hann á um trygging ríkissjóðs, í fullu heimildarleysi, og svo reynir hann að smeygja hjer inn þessu plaggi, til þess að koma sjálfum sjer úr klípunni.